Blogg
6.2.2010
Komin tími á blogg
Nú eru miðannarpróf í skólanum og Benni ætti að vera heima alla daga að læra en það gengur eitthvað illa að fá hann heim. Hann er svo upptekin af vinunum og er farin að spá í stelpurnar held ég líka.
Ásbjörn er búin að standa sig ágætlega í skólanum. Hann er bara svo mikill göslari að hann á það til að missa sig í vinalæti og einbeitir sér þá ekki að því sem er á dagskránni. En hann er samt sem áður allur að vilja gerður og er alltaf jákvæður. Nema kanski við Benna.
Brynhildur er orðin svo stór að hún vill bara vera leika við einhverjar stelpur og er ekkert á því að koma heim á daginn, nema einhver komi með henni heim. Ef engin kemur í heimsókn þá neyðist hún til að leika við Martein og það gengur bara vel þessa daganna. Þau voru svo upptekin í leik í morgun að þau máttu ekkert vera að því að horfa á barnaefnið.
Marteinn er hættur með bleiu og það gengur mjög vel hjá honum. Hann lætur alltaf vita og er mjög jákvæður, en samt þurfum við að bíða frammi á meðan hann gerir nr 2......
Guðný er farin að fara upp um allt og út um allt, opnar alla skápa og klínir á allt. Já hún er að verða eins árs. uppáhalds aldurinn segja sumir. En við erum meira fyrir 5 ára aldurinn... Erum sveitt á eftir henni eða á undan því að hún klifrar upp um lappirnar á okkur. En það samt gaman að fylgjast með henni og sjá framfarirnar á hverjum degi.
Núna erum við í Austurtúni að bíða eftir nýbökuðum kleinum.
Ps. Setti myndir inn
25.1.2010
Janúar
Þetta er allt saman Facebook að kenna hvað við erum léleg að blogga. Það fer bara allt þangað inn.
Ég má samt til með að segja ykkur frá því sem við höfum verið að gera núna í janúar.
Ásbjörn fór einn til pabba sín um helgina og Benni hélt gistipartý á föstudagskvöldið. Þeir bræður hafa gott af því að hvíla sig á hvorum öðrum annað slagið. Þá fá þeir að njóta sín á hvorum stað fyrir sig.
Benni bauð 6 krökkum að gista og mættu þau hingað um sjö leitið og pöntuðu pitsu. Síðan voru þau niðri í herberginu hans Benna (sem er stóra herbergið). Þar voru tvær dýnur og svefnsófi og rúm. Ég tek það fram að það voru stelpur í hópnum og við fórum reglulega að hlera til að vera viss um að allt færi vel fram. En ég held nú að það sé vel hægt að treysta þessum krökkum. Ég hefði ekki verið svona róleg ef þau væru 15 ára. Við urðum ekki mikið vör við læti eða neitt slíkt en um fimm leitið vaknaði ég við smá gelgjulæti og sendi Sverri niður til að fá þau til að fara að sofa. En svo þegar ég vaknaði með yngri krökkunum kl hálf átta þá mætti strollan upp í morgunmat. Ósofin!!!
Benni hraut að vísu niðri og svo fór einn heim fljótlega. En þau náðu að vekja Benna og fóru út frá okkur kl. 10 og sofnuðu víst hér og þar um bæinn.
Við Sverrir fórum á dansnámskeið og erum útskrifuð í svingi. Það var mjög gaman að fara út af heimilinu og dansa í klukkutíma á dag. Það var ekki námskeið fyrir krakkana á leikskólanum í þetta skiptið og strákarnir vildu ekki læra að dansa, sama hvað ég reyndi að múta þeim.
Ég má til með að segja ykkur frá því sem dr. Brynhildi dettur í hug. Allavega því sem ég man þessa stundina.
Hún var að leika sér inn í stofu og sat á gólfinu með dót. Svo heyrðist íslenski bankinn, herinn burt! (Ísland út nató, herinn burt) Ég spurði hana hvar hún hafði heyrt þetta og hún svaraði "Nú sjónvarpinu"
Seinna um daginn þá sat hún við eldhúsborðið og var að teikna. Hún teiknaði Martein og sig með hár niðrá gólf. Svo raulaði hún með. Það var eins og hún væri að yrkja ljóð því allt sem hún sagði voru stuttar setningar og voru einhvern veginn svona, " sólinn skín, dagur vært, ótti við nótt". Ég tek það fram að þetta er aðeins brot af því sem hún samdi. Núna erum við með blað og penna tilbúin á borðinu og skrifum niður allt sem kemur upp úr henni.
Hér er mynd af Guðnýju Sverrisdóttur með nöfnu sína
10.1.2010
Það sem af er ári
Við áttum frábært þrettándakvöld. Siggi Atla (Galdramaðurinn í Galdrasafninu) hafði búið til skautasvell á bílastæðinu hjá galdrasafninu og þar var sungið bæjarbúar hittust og fengu kakó og smákökur. Síðan var björgunnarsveitin með flugeldasýningu. Það var logn og frost og þetta gat ekki verið betra.
Benni er orðin nokkuð góður á skautum og fer þangað með vinum sínum þegar hann getur. Svo kemur hann heim og finnur ekki fyrir tám og fingrum af kulda. Brynhildur er farin að komast áfram á skautum án þess að þurfi að halda í hana. Og að sjálfsögðu er frúin líka búin að renna sér og detta nokkrum sinnum. Sverrir er ekkert búin að skella sér en hann á þessa fínu skauta samt.
Við erum líka búin að fara á skíði og er æfingar byrjaðar. Ég, Brynhildur, Ásbjörn og Marteinn erum að æfa skíði og Benni ætlar líka að æfa en það gengur ekki vel að koma honum frá skautunum. En núna er bæði svell og snjór farin þannig að það er spurning hvort við náum eitthvað að fara aftur í vetur. Ég geri nú ráð fyrir því að það komi meiri snjór.
Guðný er farin að skríða út um allt og er nokkuð snögg. Hún náði að lauma sér inn á gang og þar var hliðið ekki lokað fyrir stigað og hún rúllaði þar niður. Hún slapp ómeidd og er aðeins marin í andlitinu og ekkert að sjá annað. Við erum núna súper stressuð yfir stiganum.
Guðný og Brynhildur eru farnar að fara oft saman í bað. Ef Guðný nær að lauma sér inn á bað þá grenjar hún ef hún fær ekki að fara ofaní.
Dr. Brynhildur leikur listir í baði
1.1.2010
Áramótakveðja
Það er stutt blogg í þetta skiptið. Við erum að drífa okkur út á skíði. Brynhildur er nokkuð góð á sprettinum og Marteinn er dregin með á sleða.
Við höfðum það gott í gær, börnin sofnuðu við skaupið og húsmóðirin sofnuð fyrir eitt. Sverrir var að vinna fram eftir morgni.
Skellum inn myndum seinna
Kveðja frá Vitabraut
24.12.2009
Aðfangadagur
Ákveðið var að reyna að stressa sig ekki með jólakortin og senda þá bara nýárskveðju í staðin. Við sendum semsagt ekki kort fyrir þessi jól. Sverri finnst það ekki nógu gott að sleppa kortunum en ég lét annað ganga fyrir. Planið var að klára allt fyrir jólin, fyrir 15. des, en það tókst svona um 20. enda erum við algjörlega laus við jólastressið :)
Krakkarnir hafa verið dulegir að undirbúa jólin og aðstoðað við bakstur, tiltekt og gjafakaup. En skemtilegast er að pakka inn gjöfunum. Benni fínpússaði herbergið sitt í gærkveldi og var að dunda sér með mér fram yfir miðnætti í gær. Svo átti að fara að leggja sig en þá vakanaði Guðný og var í fullu fjöri til kl 3 í nótt. Þannig að aðfangadagur byrjar með því að foreldrarnir skipta með sér vöktum. Þessa stundina er Sverrir að leggja sig en ég fékk að taka fyrri blundinn.
Guðný er farin að skríða og standa upp og er því yfirleitt með rautt eða marið trýni. Hún er rólegasta barnið hingað til (sjö, níu, þrettán). En hún á það til að vakna seint á kvöldin og byrja að spjalla og standa upp og gala yfir allt. En hún fær ekki að fara fram að leika sér eins og hún vill og þá á hún það til að öskra sig hása. En það er eini tími dagsins sem það heyrist í henni.
Marteinn er ennþá sami orkuboltinn sem hann var. Hann er farinn að leika sér meira en hann gerði og getur dottið í að horfa á mynd öðru hvoru. Annars er hann allur að koma til, farin að telja upp í tólf og kann öll leikskólalögin og jólalög eru í miklu uppáhaldi. Hann notar skóhorn sem gítar og hleypur um allt og syngur.
Þegar jólasveinarnir byrjuðu að setja í skóinn þá var hann ekkert á því að setja skóinn sinn í gluggann. Hann vildi ekkert að einhverjir karlar væru að læðast inn í hans herbergi um miðjar nætur. En svo var þetta ekkert mál eftir nokkrar nætur, en til að byrja með vildi hann ekki kíkja sjálfur í skóinn.
Marteinn er yfir sig spenntur yfir jólapökkunum og fékk að setja smá undir tréð í gær
en það endaði með því að hann opnaði aðeins og þá var allt sett aftur inn í skáp. En svo í gærkvöldi settum við allt undir og okkar maður er búinn að pakka einum pakkanum aftur og aftur inn í pappír og situr undir trénu með pakkann í fanginu.
Brynhildur er spekingurinn í fjölskyldunni. Hún er mikið að spá í hlutunum og spyr mikið, og á svör við öllu.
Um daginn var Ásbjörn að spyrja um vin hans Benna, hvort hann væri farinn heim. Þá svaraði sú stutta "...þú þarft ekkert að eyða þínum áhyggjum af honum".
Brynhildur bjó til jólakort og sendi á krakkana í leikskólanum og er voða mikil föndukona. Hún getur dundað sér í leik allan daginn ef hún fær frið.
(það er svo margt sem hún segir og gerir sem ég ætlaði að segja frá en svo man maður ekki neitt)
Ásbjörn fer í göngutúr með afa sínum og Gordon á hverjum degi núna í jólafríinu. Hann var voðalega stoltur þegar hann kom heim um daginn búinn að labba tvo kílómetra. Hann var svo spenntur að fara aftur og fara enn lengra.
Það gengur mjög vel hjá honum að læra á trommurnar og hann er svo taktvís að það er frábært að fylgjast með honum þegar hann spilar.
Benni er á fyrsta stigi gelgjunnar. Fer í fýlu og er ekkert mikið fyrir fjölskyldustundir, en annað slagið dettur hann í gírinn og finnst við voða skemmtilegt.
Hann er að læra á gítar og er bara nokkkuð góður.
Þetta með hárið já, einmitt. Benedikt er með voða flotta klippingu sem þarf að hafa mikið fyrir að greiða og setja gel í ef á að vera flott. En okkar er bara með húfu.
Þessa stundina eru öll börnin að horfa saman á barnaefnið og eru mjög stillt og prúð.
Þau voru að enda við að baða Gordon og hundurinn þurfti að þola að 4 börn nudduðu sápunni í hann og hann var mjög niðurlægður á meðan. En núna er hann ilmandi fínn.
Jólakveðja frá fjölskyldunni á Vitabraut 1.
Gleðileg Jól

