Blogg

29.1.2008

Veikur/ekki veikur...

Veikindi Marteins virðast núna ekki vera eins mikil og það leit út í fyrstu. Þ.e. hann er sennilega ekkert veikur. Hann fékk engan hita en hagaði sér ekki eins og hann er vanur, var rólegur og vildi kúra hjá manni og sofnaði í fanginu á mömmu sinni á tímum þar sem hann er vanalega á fullu.

Við höldum sem sagt í vonina að hann verði hress á föstudaginn en þá fer hann í eyrnaaðgerðina.

Við förum suður til Reykjavíkur á morgun (miðvikudag) og höldum til hjá Hafþóri og Olgu í Kópavoginum á meðan.

Að öðru: Það komu gestir til okkar í dag. Ein kona sem var að fá snyrtingu hjá Iggu kom með son sinn með sér sem er einmitt á leikskólanum með Brynhildi. Brynhildur kom til dyra og bauð þau velkomin;"Gjöriði svo vel að ganga í bæinn". Svo bauð hún stráknum að skoða herbergið sitt og var eins og fínasti gestgjafi. Það mætti halda að það væri ennþá Bóndadagur hjá henni en á leikskólanum þá var hún víst mögnuð þegar hún var að bjóða strákunum hákarl (sem henni finnst allveg svakalega góður) við mis mikla lukku. Það má sjá myndir af þessu á heimasíðu leikskólans á Hólmavík. 
http://www.123.is/laekjarbrekka/default.aspx?page=albums

Þess má geta að Brynhildur var útnefnd Þorradrottning Lækjarbrekku þar sem hún þótti taka hraustlega til matar síns. Hún kom svo heim með kórónu og allt (eins og reyndar allir hinir líka )

Kíkið á nýjar myndir hérna uppi.

Skrifað 29.1.2008 kl. 21:29 af Sverrir

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.1.2008

Veikur!

Nú er frábært útiveður á Hólmavík. Það er sól og nýfallin snjór yfir öllu, mikið vildi ég að ég gæti farið út að labba en Marteinn er veikur. Manni langar alltaf að fara út þegar maður getur það ekki. En þegar allir eru til þá nennir maður ekki.

Ég má til með að gleðja hana mömmu mína úr því að hún kemur um helgina málið er að heimilið mitt er allt út í svörtum hundahárum, svona mjúkum og fínum sem ekki er hægt að ná upp. Gordon er semsagt að fara úr hárum. Hann var að koma úr ferð með Sverri, þeir fóru upp á Steingrímsfjarðarheiði og Gordon hljóp í Staðardalnum nokkra kílómetra en hann hefur ekki fengið nóg því hann er byrjaður að væla um að fá að fara út. En hann fær nóg að því þegar hann fer í pössun á Ósi á meðan við förum suður. Þar leikur hann við Lufsu allann daginn, en Lufsa er hundur á stærð við veturgamlan kálf.

Annars gengur allt vel hjá okkur, ég ætla að fara í heilsuklúbbinn á eftir og svo förum við í "Sverris" tíma í kvöld.

Skrifað 28.1.2008 kl. 14:56 af Sverrir

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.1.2008

Nú er úti norðanvindur........ eða hvað?

Ég fór á kvennfélagsfund á þriðjudaginn, ég gleymdi alveg að segja ykkur frá því. Það var rosalega gaman við erum 14 held ég og á þessum fundi var mikið spjallað og það var ákveðið að fara í skemtiferð til Akureyrar í lok mars. Þá á að fara í leikhús og út að borða, ég skráði okkur Sverri að sjálfsögðu. Ég hlakka bara til að mæta næst.

Þorrinn er um næstu helgi og þá koma Hanna L frænka og vonandi Svavar Kári og frú. Hafþór og Olga hafa boðað komu sína líka. En fyrst þurfum við að bregða okkur í borgina. Förum líklega á miðvikudag og á fimmtudag mætum við í foreldraviðtal í skólanum hjá strákunum. Svo er það langþráð eyrnaaðgerð hjá Marteini á föstudag. Ég skil ekki alveg hvernig læknarnir geta ætlast til þess að láta eins árs gamalt barn fasta svona lengi eins og Marteinn á að gera, hann á að mæta kl 14.10 og þarf að hafa fastað í 6 klst.Við förum svo aftur norður á föstudag. Ég vona að við komumst yfir að hitta sem flesta en þeir sem óska eftir viðtali vinsamlegast skráið ykkur í gestabókina hér á síðuni.

Hún Silvía (barnapían) okkar er búin að vera veik og sú gamla er í útlöndum og þá hefur verið strögl að komast á æfingar. En Silvíu batnaði í gær og við vorum fljót að fá hana til að koma og skelltum okkur út í göngu með Gordon í gærkveldi en það endaði með kaffi hjá Kristjönu. Brynhildur benti okkur pent á útidyrnar þegar við komum heim, hún vildi hafa Silvíu aðeins lengur.

Í dag fórum við svo með krakkana og hundinn í kirkjutröppuhlaup. Brynja frænka mætti með Ásdísi (dóttur hennar) og Steina (litla frænda) og náttúrulega sleða á línuna. Eins komum við með sleða. Eftir hlaupin fóru allir að renna og leika í snjónum það var svaka gaman, Marteinn fékk að fara eina ferð með pabba sínum og stökk ekki bros á vör, heldur tók hann þetta mjög alverlega enda búin að æfa bílahljóðin mikið hérna heima (brrrrrrbrrrbrr, fruss). Gordon var bundin við fánstöngina við kirkjuna (sem er á hól og sést yfir allann bæinn) og spangólaði fagurt fyrir bæjarbúa.

Dagurinn endaði svo með því að Marteinn ældi yfir mig og alla stofuna.

Á morgun er planið að fara inn á Ós að hjálpa Drífu, ef veðrið verður gott en spáin er ekki góð.

Skrifað 26.1.2008 kl. 21:11 af Sverrir

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.1.2008

Fjöruferð og pulsur

Fórum að viðra hann Gordon í dag sem er ekki í frásögu færandi nema hvað nýr staður var valinn. Við fóurm út á Grundir (held að það sé kalla það) en það er hinum megin við golfvöllinn á Hólmavík. Gordon er að fíla þennan stað í tættlur því þarna er svo margt til að þefa af gamalt og nýlegt dót, gámar, skúrar og gamlir hjallar. Pabbinn fór með Brynhildi og Martein í þessa ferð því það þarf stundum að viðra börnin líka. Gordon rauk strax út í buskann og var að snuðra í kring um okkur til að byrja með, meira að segja settist hjá krökkunum rétt til þess að vera með á myndinni.

Eftir að þessi mynd var tekin hvarf hr. Gordon og sást ekki fyrr en við vorum að keyra í burtu. Hann hafði þá hlaupið upp fyrir veg og lengst í burtu frá okkur. Hann er svolítið að strjúka frá okkur þessa dagana, spurning hvort hann sakni eigandans?
Við þurfum að sækja hann tvisvar í Austurtúnið í dag, fyrst snemma í morgun þegar hann slapp frá frúnni þegar hún var að losa hann úr bandflækju. Hann vakti fólk þar í götunni með spangóli og látum. Seinna í dag sleit hann sig svo frá girðingunni og stakk af í Austurtúnið með 5 m langan vír hangandi í sér og einn taum þar að auki, við erum að tala um að hann fór svona þvert yfir alla Hólmavík með helv... tauminn hangandi í sér. Hann hefði ábyggilega skellt sér á tíkina í Austurtúni ef þessi vír hefði ekki verið að flækjast fyrir en hún er á lóðaríi einmitt núna og eigendurnir fegnir að Gordon er í stífri gæslu í hinum endanum á bænum þessa stundina...euuuuu eða?

Eftir þessa viðrun í dag fórum við í sjoppuna til að fá okkur pulsu! Allir svangir. Brynhildur borðaði næstum heila pulsu, þurfti að gefa Marteini smá part af sinni og var sátt við það. Svo lét hún pent vita að hún þyrfti að fara á klósettið og hún því drifin inn á klósettið í sjoppunni(Brynhildur er sem sagt að hætta að nota bleyju). Marteini var hins vegar vippað yfir afgreiðsluborðið og fékk hann að afgreiða í sjoppunni á meðan við Brynhildur skutumst bakvið. Þar sem ég þurfti ekki að hreinsa neitt úr brók eða verka eitthvað sem ég vildi ekki, þá fékk daman verðlaun að eigin vali í sjoppunni- auðvitað valdi hún ís. Verðlaunin svínvirkuðu því þegar við komum heim þurfti hún að fara aftur á klósettið þannig að það varð ekkert slys í dag, bara sigrar!

Skrifað 24.1.2008 kl. 20:37 af Sverrir

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.1.2008

Letilíf

Ég mátti til með að fara og taka mynd af þessu. Reyndar var þetta flottara að sjá beint.




Hér er Marteinn að sjúga á sér varirnar, sem hann gerir oft þessa dagana.

Við vorum löt í dag. Fórum í göngu með Gordon í morgun. Gordon er að verða geðveikur, hann er vælandi og heldur að hann sé úlfur (spangólar).

Skrifað 23.1.2008 kl. 18:09 af Sverrir

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.1.2008

Ótitlað

Skoða nánar

19.1.2008

aaúúúúúú!!!!!!

Skoða nánar

16.1.2008

Kvef og aftur kvef

Skoða nánar

15.1.2008

Eru Samverjar á Íslandi?

Skoða nánar

13.1.2008

Allt komið í lag aftur

Skoða nánar

12.1.2008

Laugardagsfjörið

Skoða nánar

11.1.2008

Þessi helgi

Skoða nánar

7.1.2008

Hversdagsleikinn hefur tekið völdin á ný

Skoða nánar

3.1.2008

Klemma putta

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 81
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 224634
Samtals gestir: 61716
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 07:19:35

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

13 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

14 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

24 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

26 daga

Guðný 1 árs

eftir

14 daga