Blogg

29.2.2008

Hlaupársdagur

Það verður náttúrulega að blogga aðeins á þessum degi. Dagurinn þar sem allir sem eru að vinna vinna launalaust? Heyrði þetta í fréttunum í dag og fór að hugsa, "ég held að þetta sé ekki alveg rétt". En ég er ekki að fara að eyða deginum í að velta mér upp úr þessu, held bara áfram að vinna!

Eftir vinnu fórum við fjölskyldan í heimsókn inn að Ósi. Lögðum af stað í fínu veðri, bjart og fallegt eins og svo oft áður á Hólmavík. Við fórum á Chrysler og renndum inn í góða snjókomu þegar við nálguðumst Ós. Skemmtilegt að fá svona snjókomu til tilbreytingar, eða þannig. Við vorum búin að láta vita að okkur langaði til að mæta þegar kindurnar fengu hey í jötu sína og við mættum mátulega í verkið.

Marteinn var rosalega spenntur en aðallega út af snjónum, hann vill ólmur ganga í sköflunum þó svo að hann geti það ekki nema þá helst ef hann kemst á harðfenni. Ég hélt samt á honum síðasta spölinn eftir að hann festi sig í skafli. Við fórum síðastir inn í fjárhúsið og viti menn, var búinn að gleyma að dyrnar væru ekki í fullri hæð og stangaði í dyrnar af miklu afli. Ég var að flýta mér því veðrið var að versna! Það stór sér á skallanum, ég sem var nýbúinn að gróa eftir síðasta högg á sama stað (Lexus er af sama hörkustigi og fjárhúsin á Ósi).

Að venju var mikið fjör í fjárhúsunum. Marteinn og Brynhildur eru orðin svo vön að þau eru eiginlega ekkert hrædd við kindurnar. Brynhildur hrökk aðeins við þegar hún var að gefa kindunum fóðurbæti úr lófanum og ein kindin náði að bíta í puttann á henni. Hún talar enn um þetta bit þó svo að það hafi nú ekkert sést á henni eftir bitið.


















Brynhildur að gefa fóðurbæti, rétt áður en hún var bitin!






















Heimferðin var svo tvísýn þar sem það var kominn blindbylur. Við stoppuðum ekki einu sinni til að súpa úr einum kaffibolla, rukum bara beint heim.

Já, Gordon var náttúrulega með okkur í þessari heimsókn. Honum var bara sleppt út úr bílnum við komuna á Ós og hann og Lufsa (hundurinn á bænum) hlupu út í bylinn og sáust ekki aftur fyrr en við vorum að fara. Þau litu bæði út eins og snjókarlar í hundslíki.  Gordon er núna alveg eins og skotinn, góð hreyfing og lax í kvöldmatinn, hvað er hægt að biðja um meira?

Skrifað 29.2.2008 kl. 21:35 af Sverrir

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.2.2008

Ósköp fátt að frétta

Það er eitthvað svo afslappað andrúmsloft hér á Hólmavík þessa daganna. Göturnar voru ekki einu sinni mokaðar að ráði fyrr en í gær, en okkur var alveg sama því við göngum bara það sem við þurfum að komast. Í dag er sól og blíða og þá er ekki hægt að hanga inni. Við Marteinn fórum með Brynhildi á leikskólann í morgun (gangandi) og svo fóum við út að leika við Gordon. Ég hef verið að vinna í dag og gær svona á milli þess sem Sverrir er að vinna, en svo eiga börnin plat ömmu (Brynja) á Hólmavík sem fær þau lánuð annað slagið. Í gær fóru þau til hennar og Ásdís var að æfi sig að passa því hún er ákveðin í því að taka við af Silvíu þegar hún lætur af störfum (fer í skóla), Brynhildur er þar á heimavelli og lætur eins og heima hjá sér, hoppar í rúmum og fer í frystinn að ná sér í ís.

Góugleðin er um næstu helgi og þá má búast við 200 manns á balli. Við Sverrir höfum ákveðið að vera heima og hafa það gott enda þurfum við að spara okkur fyrir Kanarí. Ég verð að vísu að farða nokkrar konur, ég verð að taka aðeins þátt í undirbúningi.

Skrifað 28.2.2008 kl. 12:24 af Sverrir

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.2.2008

Maður yngist bara

Helgin hjá okkur var rosa fín. Við komum á föstudagskvöld um átta leitið eftir smá seinkun í Reykjavík. Við áttum nefnilega bíl á verkstæði sem við máttum sækja. Já við erum komin aftur á Chrysler, en það sem við þurftum að borga....... Dísess

Á laugardaginn var Bingó á Hólmavík, Brynhildur og Ásbjörn voru ekki með mikið úthald í þetta svo mamma fór með þau heim.  Benni var náttúrulega mjög sigurstranglegur eftir sjöfaldan vinning þarna um árið. Við sátum í tvo klukkutíma og ekkert virtist ætla að gerast okkur í hag... en svo kom það VINNIGUR en Benni var ekkert svo áttur við Álftagerðisbræður og harmoniku disk. Hann var fljótur að hugsa út hver átti að fá þessa diska að gjöf, þeir fara að öllum líkindum á Húsavík ef amma og afi þar vilja taka við þeim.

Á sunnudag héldum við uppá afmæli Marteins. Við bökuðum skúffuköku og ýmislegt annað  Ég er að reyna hemja mig þessa stundina að ráðast ekki á afgangana.

Strákarnir fóru svo aftur suður með mömmu og pabba. En þau eru að fara til Kanarí á morgun. Sem þýðir að Hr Gordon er hérna hjá okkur. Í gær var Gordon að koma út úr eldhúsinu (hann á ekki að vera þar) og ég stóð fram á gangi og sá að hann var eitthvað skrítin, hann teigði hausinn og var hálf aumingjalegur. En svo kom skýringin, Marteinn dróst á eftir honum með gott hald í löppunum á Gordon. Ég veit ekki hvað Marteinn var búin að halda lengi.

Við Heiða fórum í ræktina áðan og stóðum okkur með príði. Við fórum í gufu og svo þegar við vorum að klæða okkur komu 6 og 7 ára stelpurnar inn í klefann. Þær voru að fara í íþróttir. Við Heiða vorum að bera á okkur krem í rólegheitum og spjalla við stelpurnar þegar ein þeirra segir "af hverju eruð þið svona feitar"!!! Við hlógum og spjölluðuð aðeins meira og komið var að Heiðu að klæða sig í sokkana þegar sú stutta sagði " ég finn táfílu".
Og þegar við vorum orðnar rauðar í framan benti stelpan á Heiðu og sagði " Ert þú mamma hennar" og benti á MIG
Ég við taka það fram að þá var hún að meina hversu ellileg Heiða er.

Skrifað 25.2.2008 kl. 12:19 af Sverrir

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.2.2008

Hver er á myndunum?

Hér eru nokkrar myndir sem ég rakst á í tölvunni hjá pabba. Ég spyr hverjir eru á þessum myndum? Sá sem getur séð hvaða börn eru á annarri mynd fær verðlaun.





































Skrifað 23.2.2008 kl. 11:24 af Sverrir

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.2.2008

Hver er á þessari mynd?

Við Sverrir erum komin í bæinn (Reykjavík). Við erum að sækja strákana og fara á einn stað á morgun en það kemur síðar í ljós hvað gerist þar.

Við erum hjá Hafþóri og Olgu í góðu yfirlæti. Olga tók til í herberginu mínu (við eigum þetta herbergi hjá þeim) og skúraði allt í tilefni komu okkar
Við erum að dáðst af nýja sófanum þeirra, rosa flottur nýmóðins sófi ásamt hvítum leðurstólum. Það er orðið svo flott hjá þeim að ég er hrædd við að koma með krakkana hingað (aðallega þau yngri), nýtt glerborð, nýtt borðstofusett og tala nú ekki um öll nýju ljósin. Þau unnu ekki í lottó heldur fóru þau með dósirnar í endurvinnslu og fengu borgað 7 kr á dós.


Marteinn og Brynhildur eru hjá ömmu og afa á Hólmó. Þau lofuðu að gera góð og stillt, en þegar ég hringdi um 9 leitið þá var Marteinní fullu fjöri. Þau eru farin að sofa yfirleitt um hálf átta, en hann var þokkalega stilltur sagði hann. Marteinn verður eins árs á morgun og við vitum ekki hvað við eigum að gefa honum, en ættli það endi ekki með golfpoka eða stangarstöng

Það er orðið mjög mikið að gera hjá mér í snyrtingunni, ég hugsa að ég geti unnið við það 40- 50% starf. Sem er frábært. Kúnnarnir mínir eru náttúrulega allir sem ég þekki og það er gaman að kynnast þeim enþá betur. Svo koma líka kúnnar frá nágrannastöðunum eins og Borðeyri og úr sveitunum og það er bara gaman að fá að kynnast þeim líka. Ég vona bara að allir séu ánægðir hjá mér. Ég var að fjárfesta í nýju tæki og hef planað að taka inn nýjar meðferðir líka.

Sverrir er bara áfram gamall.


Skrifað 21.2.2008 kl. 23:28 af Sverrir

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.2.2008

Hann átti afmæli í gær

Skoða nánar

18.2.2008

Gler eða leir...eða drulla

Skoða nánar

14.2.2008

Eða jú set myndir

Skoða nánar

12.2.2008

Hundalíf

Skoða nánar

11.2.2008

Lillu og Pétursbörn

Skoða nánar

10.2.2008

Gott að koma heim

Skoða nánar

8.2.2008

í dómi í orðsins fyllstu

Skoða nánar

4.2.2008

Þorrablót

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 109
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 190
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 224497
Samtals gestir: 61666
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 21:40:33

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

15 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

16 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

26 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

24 daga

Guðný 1 árs

eftir

16 daga