Blogg

31.7.2008

Versló

Nú er ferðahelgin framundan. Ég og börnin förum líklega í leiðangur á eftir mömmu og pabba. Sverrir verður heima að vinna, einhver þarf að vinna fyrir bensíninu sem ég spreða.

Mamma og pabbi fara í dag og á morgun veit ég hvar þau eru og þá leggjum við í hann og höldum fjörinu uppi alla helgina. Mig grunar að Borgafjörðurinn verði fyrir valinu, eða Húsafell.

Ég er búin að vera vinna og taka smá auka því að það vantaði matráð til að vinna á móti mér. En núna er búið að redda því. Það er 23 ára Ástrali, já útlendingur. Hann er fínn, hann nennir að þrífa og hefur áhuga á eldamennsku. Ég held að hann gæti verið gay en það kemur bara í ljós síðar. Ég skrifaði matseðilinn á ensku fyrir hann og límdi post it miða á all í eldhúsinu :) m.a. var head of lamb og salted fish with roug bread and butter. Nú eru allar konurnar í vinnunni að kenna manninum að elda hefðbundin gamlan íslenskan mat.

Ég var að klára niðjatalið og það hefur komið í ljós að við ættingjarnir sem ætlum að hittast eftir viku erum um 120 og þá myndi ég segja að góð mæting væri 80 -90
Ég er ekki komin með töluna á þeim sem hafa staðfest mætingu, en ég ætla að vona að ég komist því að ég gleymdi að fá frí í vinnuni og á eftir að redda því

Skrifað 31.7.2008 kl. 14:44 af Igga

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.7.2008

Frábær ferð á Ísafjörð

Ferðin okkar gekk ljómadi vel. Brynhildur var eins góð og hún getur verið allann daginn. Marteinn var í góðu skapi líka en það þurfti aðeins að hafa fyrir honum.

Við fórum af stað klukkan níu og stoppuðum í fjöru einhversstaðar á leiðinni en þar urðum við fyrir árás skrækjandi fugla, þannig að við vippuðum okkur yfir í næsta fjörð og busluðum þar í á og Marteinn dundaði sér við að kasta steinum í ánna í hálftíma eða svo. Það var 18 -20 stiga hiti en aldrei sól.

Við stoppuðum svo á Súðavík og keyptum okkur snarl í búðinni þar. Við hittum Ödda (Þekktur sem Mugison) fyrverandi bekkjarfélaga minn frá Laugum og hann var með strákana sína tvo sem eru jafn gamlir Brynhildi og Marteini. Við fórum öll á leikvöll þarna sem heitir Ragga garður. Það var æðislegt að vera þar. Krakkarnir klifruðu og léku sér í rúman klukkutíma. Já og skiptust á að þurfa gera nr 2

Við fórum svo á Ísafjörð og rölltum um bæinn og gerðum góð kaup í Hafnarbúðinni. Enduðum í Bónus. Sem var broslegt. Marteinn var í essinu sínu, hann tætti úr hillum ef hann náði í þær og greip svo kiwi og beit í það, kramdi og hennt því í einhverja konu. Ég brosti mínu blíðasta og bað hana afsökunar. Þegar á kassann var komið fékk allur matur sem var í körfuni að fjúka á gólfið. Bananarnir sem ég keypti eru óætir því að þeir fóru frekar oft í flugferð. Ég hennti bara öllu draslinu í bílinn og forðaði mér burt. Ég hafði verið svo snjöll að taka með kælibox byrir matinn, svo að ég þurfti ekkert að bruna beint heim.

Við stoppuðum svo að Látrum hjá Stínu vinkonu minni. Þar búa foreldrar hennar og eru með hesta, kindur og beljur.
Hestarnir voru allt í kringum húsið þegar við komum og Mareinn tó á rás og var svo æstu í að ná þeim að hann klappaði saman lófunum og skríkti. Þá tóku hestarnir til fótana og litli á eftir. Þegar hann loksins náði þeim var hann voða góður við þá, vildi samt fara undir og yfir þá, svo eru eyrun eitthvað svo spannandi á hestum. Það þurfti að vakta Martein allann tímann. Brynhildur var líka hrifin af hestunum en var ekki með nein læti.

Svo fórum við í fjósið. Þá var Stína með Brynhildi og ég með Martein, en við skiptum fljótlega því að Marteinn var rólegri með Stínu. Brynhildur fékk fræðslu um hvernig mjólkin verður til í bláu fernunum og Marteinn reyndi að éta kýrnar.
Bóndinn sá fljótlega að þessi börn hefðu áður komið í sveit, því að þau hræðast ekkert, nema kúk.

í gær var geggjað veður, 20 stiga hiti og logn. Ég var búin að vinna um 3 og þá fór ég heim í stuttbuxur og Brynhildur var ber að ofan og við vökvuðum garðinn og bleyttum aðeins í okkur líka. Marteinn var sofandi í vagninum á meðan.

Við fórum svo út í kartöflugarð og fengum okkur radísur og fundum eina litla kartöflu sem Brynhildur át.

Ég held að veðrið verði líka gott í dag. vúhú

Skrifað 27.7.2008 kl. 10:10 af Igga

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.7.2008

Á ferð og flugi

Marteini og Brynhildi semur ekkert sérlega vel þessa dagana. Þau geta ekki verið saman í leik öðruvísi en að það endi með slagsmálum og stöku sinnum áverkum. Ég er búin að hóta að senda lögregluna á þau en þau virðast ekki bera jafn mikla virðingu fyrir lögreglunni eins og önnur börn.

Brynhildur er farin að leika sér við vinkonur sínar í hverfinu og það er æðislegt. Þær eru úti í garði eða inni að leika með dót. Hún fór í heimsókn til Unu í gær og svo kom mamma Unu með þær heim til okkar. Það gekk mjög vel, þangað til villi strákurinn mætti á svæðið og klóraði Unu og tók svo brjál.

Ég tók að mér auka vinnu þessa viku og smá í næstu. Það gengur eitthvað illa að manna hér. Reyndar gengur ekkert að fá fólk í mörg störf hér á Hólmavík, og það eru meira að segja störf þar sem krafist er menntunar. Margir halda að það séu bara láglaunastörf í boði hér, en svo er ekki.

Ég á frí á morgun og þá var ég að spá í að heimsækja vinkonu mína sem er stödd hjá foreldrum sínum í sveitinni (man ekki hvað það heitir). Þetta er mitt á milli Ísafjarðar og Hólmavíkur. Þar eru Kýr, hundar, hestar og kisur og ég held flest öll húsdýr sem finnast á Íslandi. Það verður æði að komast í svona sveit. Ég var að hugsa um að skella mér alla leið til Ísafjarðar úr því að ég fer hvort sem er hálfa leið. Versla í Bónus og svoleiðis, það er líka bara gaman að koma þangað. Við börnin förum þá í menningarferð.

bless í bili

Skrifað 23.7.2008 kl. 11:13 af Igga

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.7.2008

Villi drengur eða wild boy

Úff hvað maður er latur við bloggið!

Við (ég, Brynhildur og Marteinn) fórum á ættarmót um helgina hjá Fossætt (sem er ættin hans Sverris). Það var haldið á Reykhólum. Það var smá skrítið að fara á ættarmót þar sem Sverrir kom ekki með. En við þekktum marga þarna og það var rosa gaman. Við vorum með lítið tjald með okkur en enduðum á því að byrgja fyrir gluggana í bílnum og settum tjaldýnurnar í skottið og gistum þar. Ég hafði tekið öftustu sætin úr áður en við fórum af stað svo það var nóg pláss. Marteinn hefur ekki sofið svona vel í allt sumar. Við vöknuðum samt um sjö eins og vanalega.

Marteinn fékk viðurnefnið "villi strákurinn" . Það var Fannar frændi hans sem var að leita að honum og sagði Hey hvar er villi strákurinn. Marteinn var nefnilega ekki kyrr alla helgina. Hann hljóp tjalda á milli og heilsaði fólki, ef hann var ekki hjá okkur sást hann hlaupandi með bolta sem hann hafði stolið einhversstaðar eða hlaupandi á eftir hundi. Hann spjallaði held ég við alla ættingja sína fyrsta hálftímann eftir að við komum á svæðið.
Við fórum á sveitabæ sem heitir Staður og þar voru kálfar og ég varð að hafa mig alla við að halda Marteini okkar megin við rimlana. Hann ættlaði inn til þeirra og var ekkert smeikur við risavaxið naut sem reyndi að sleikja hann. Stelpurnar, Brynhildur og Margrét, voru heldur ekki hræddar en þeim leist ekkert á það þegar nautin fóru að reka út úr sér risavaxna tunguna.

Við komum heim um eitt leitið og þá vorum við búin á því. Eftir blund og smá garðvinnu fórum við í sund.


Nú er rigning og þvílíkur hiti úti og þá á maður að koma sér af stað aftur í púlið (ræktina) ég bara nenni því ekki. Get ég fengið smá hvatningu

Skrifað 21.7.2008 kl. 19:59 af Igga

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.7.2008

Ein á Hólmavík

Það kom að því að við erum ein eftir á Hólmavík, eða þannig.  Benni og Ásbjörn eru farnir suður í sumarfrí og verða í 5 vikur. Við erum þá bara fjögur eftir í kotinu og nóg pláss. Signý og Bjössi fóru sumsé í húsbílaferð í síðustu viku og eru ekki enn komin heim aftur, ekki út séð með að þau komi nokkuð aftur í bráð. Þetta er svona þegar fólkið uppgötvar fríin. Krakkarnir eru búnir að vera duglegir að halda þeim uppteknum þegar þau eru heima

Við fréttum af þeim í golfi á Húsavík í gær, mánudag, og svo í mat í Vilpunni. Mér skilst að þau hafi fengið m.a. lunda og njóla í matinn.

Núna fer púsluspilið í gang aftur þegar við erum bæði byrjuð að vinna aftur. Leikskólinn er í sumarfríi þannig að við erum með eina unga barnapíu sem kemur og passar. Það á eftir að vera fínt.

Svo er ættarmót hjá minni ætt um næstu helgi á Reykhólum, ekki fullvíst að ég komist en Igga er að spá í að fara og hitta fólkið og sýna börnin. Vonandi að Chrysler þoli að fara yfir Tröllatunguheiðina, síðustu tvær ferðir hjá Iggu voru á viðvörunarljósum og reykjarmekki úr bremsunum þannig að þetta er spurning.

Skrifað 15.7.2008 kl. 23:00 af Sverrir

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.7.2008

Ótitlað

Skoða nánar

7.7.2008

Fast þeir sóttu sjóinn...

Skoða nánar

6.7.2008

Á ættarmóti

Skoða nánar

3.7.2008

Já já það koma myndir

Skoða nánar

1.7.2008

Hamingjan heldur áfram

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 49
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 171
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 224830
Samtals gestir: 61772
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 15:24:36

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

12 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

13 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

23 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

27 daga

Guðný 1 árs

eftir

13 daga