Blogg
29.8.2008
Óveður
Nú er fyrsta óveður haustsins. Það var allt sem fokið gat tekið inn og restin bundin niður. Nú heyrir maður bara í vindinum og í nótt heyrðist svo mikið í rigninguni að maður gat ekki sofið.
Ég er að fara suður að ná í strákana. Við verðum ekki komin heim fyrr en seint í kvöld. Ásbjörn er að fara í afmæli sem er búið kl 7 og við Benni dundum okkur eitthvað á meðan.
Brynhildur er svo spennt yfir því að þeir eru að koma, en Martein fattar þetta ekkert.
Við erum að fara að passa Gordon í mánuð á meðan mamma og pabbi fara til Noregs í húsbílaferð. Ég veit ekki hvernig hann verður eftir svona langa dvöl hjá okkur því að Marteinn lætur hann ekki í friði og er alltaf að reyna að lyfta honum upp og tekur í hann og svo heyrist uuuuuu... þá er Marteinn að lyfta og svo vælir Gordon. Ef Gordon liggur á gólfinu þá kemur Marteinn og stígur á hann. Ég held að þetta sé öfund í Marteini.
Ég er komin með nokkra fermetra af gleri og núna er planið að fara á fullt í glerbræðsluna. Reyndar keypti ég líka nokkra tugi kg af leir og ætla líka að leira í vetur.
Það vantar bara húsnæðið, bílskúrinn er víst fyrir bíla

21.8.2008
Mjólkuróþol?
Það er búinn að vakna sá grunur að Marteinn sé með mjólkuróþol! Hann er með hin ýmsu einkenni sem börn með mjólkuróþol hafa þannig að við erum að prófa að sleppa því að gefa honum mjólk og allt sem mjólk er sett útí. Ætlum að prufa þetta í amk. 3 vikur og sjá hvort hann verður ekki betri. Hann er á soyjamjólk og ýmsum soyja eða rísvörum í staðinn fyrir þetta venjulega sull. Þetta er alveg heilmikið vesen en hann er sáttur við það sem hann fær og tekur ekkert eftir neinum breytingum.
Strákarnir fóru suður í dag með afa sínum og ömmu. Þau voru að fara á landbúnaðarsýninguna á Hellu á húsbílnum og fóru með strákana í leiðinni. Þeim finnst gríðarlega gaman að fara í húsbílaferð því þar geta þeir horft á myndir og borðað á sama staðnum, jafnvel á ferð!
Ásbjörn er farinn að spila golf og hefur bara nokkuð gaman af því. Hann fór með afa sínum 7 holur í gær og var farinn að tala um að yrði fljótt betri en mamma hans ef þetta héldi svona áfram. Benni fór líka í golf hérna núna eins og kom fram áður. Brynhildur er að ná hæð í að sveifla stystu kylfunum sem við erum með og þá verður tekinn léttur "Sörenstram" á leikinn hef ég trú á.
Svo er það leikurinn á morgun: Áfram Ísland, engin framlenging takk - ég þarf að fara með Martein í brúðuleikhús kl. 3!!!

19.8.2008
Góður fiskur og ber í eftirrétt
Fiskurinn sem við veiddum í gær var grillaður í Austurtúni í kvöld og smakkaðist bara prýðilega vel. Þetta var mátulegt fyrir okkur öll þó svo að Benni hafi komið sér í mat annars staðar þar sem hann vissi að það stæði til að borða fiskinn í kvöld. Gaman að þessu, Ásbjörn sagðist ekki vilja neinn urriða, hann vildi bara borða þessa bleikju, en áttaði sig ekki á því að þessi bleiki fiskur sem hann var búinn að stappa við kartöflurnar var urriðinn en ljósi fiskurinn sem hann vildi ekki var bleikjan; sniðugt?
Á meðan Igga og Signý fóru í berjaferð með yngstu börnin á Sandnes fórum við Benni, Teddi vinur hans og nágranni og afi Bjössi í golf.Við spiluðum 9 holur og gekk bara ágætlega hjá öllum þrátt fyrir að úthaldi vanti hjá sumum í heilan hring. Þetta verður komið í fínt lag fyrir ULM 2010!
Berjaferðin gekk bara ágætlega. Það er náttúrulega ekkert hægt að tína ber þegar það þarf að passa Martein og Brynhildi á sama tíma. Signý sagði reyndar að það hefði virkað ef hún hefði bara passað að tína alltaf reglulega smá í botninn á dollunni hans Marteins því hann varð alltaf að vera étandi ber til þess að vera rólegur. Svo getur hann að sjálfsögðu ekki haldið á berjadollu án þess að hella úr henni reglulega.
Það er komin ný skoðanakönnun hér á síðuna, fékk kvörtun um að könnunin sem var hefði ekki verið nógu skemmtileg

18.8.2008
Vel heppnuð veiðiferð
Núan rétt áðan vorum við að koma í hús eftir vel heppnaða veiðiferð. Við hjónin, Benni og Bjössi afi fórum í veiðiferð í vatn sem er hér skammt frá Hólmavík. Við höfum farið þangað áður og ekki alltaf gengið vel. Núna veiddust fjórir góðir og einn lítill. Svo slapp fyrsti fiskurinn sem kom á land hjá Benna. Hann var kominn upp í fjöru en spriklaði svo mikið að hann flaug út í aftur og var horfinn á nóinu. Sá fiskur stækkaði mest af öllum því hann var bara lítill þegar talað var um hann fyrst en svo þegar við lögðum af stað heim þá heyrði ég einn tala um að sá sem slapp var sennilega svipaður og sá stærsti! Þetta voru sem sagt þrjár góðar bleikjur og einn urriði, sá litli hefur sennilega verið urriði líka en ég sá hann ekki almennilega sjálfur.
Ásbjörn og Benni eru hjá okkur fram á fimmtudag en þá fara þeir suður aftur og byrja í Selásskóla í vetur. Fyrirtaka í Hæstarétti er dagsett 24. október.
Þegar við komum heim úr veiðiferðinni var Ásbjörn ekki kominn heim en hann var úti að leika við Hörpu vinkonu sína. Signý amma fór að svipast um eftir þeim og fann þau þar sem þau höfðu verið að smíða kofa fyrr um daginn en núna var Ásbjörn búinn að stíga á nagla og var lá óvígur eftir. Stórt gat á ilinni og okkar maður verulega slasaður. Farið var með sjúklinginn, og Hörpu, heim í Lækjartún til aðhlynningar. Harpa ætlar að gista hjá honum í nótt og var búin að vera mikil spenna út af því. Gatið á fætinum er ekki eins stórt og það leit út fyrir í fyrstu og sjúklingurinn er nokkuð sáttur við sig eins og er.
Á morgun er meiningin að grilla aflann en afi Bjössi fór með hann heim til sín og gera menn ráð fyrir því að einhver á því heimili geri að aflanum. Það er nokkuð víst að þekkingin til þess er mest hjá okkar fólki í Austurtúni.

12.8.2008
Sumarið er að verða búið
Ættarmótið var frábært. Ég held að allir hafi skemt sér vel.
Mér brá frekar þegar hálftími var í fótboltamótið. Fyrr um morgunin voru margir búnir að koma til mín og fá að sjá liða skipanin og báðu fleiri að fá að vera með. Á endanum voru 8 lið að keppa en fleiri hefðu viljað vera með.
En já hálftíma fyrir fyrsta leik voru menn mættir út á völl í bótboltabúningum og í takkaskóm að hita upp. Það átti að taka þetta mjög alvarlega.
Mæður komu til mín með áhyggjur af sínu fólki því að þeim þótti ójafnt í liðum. Í einu liðinu voru menn sem höfðu æft með ÍA og voru ansi efnilegir, mættir með fulla hörku, á mótu unnustum sínum og frænkum. En þegar leikurinn var búin voru frænkurnar bara nokkuð góðar og þetta var ekki eins ojafnt og fólk hélt í fyrstu,
Annað lið var líka öflugt. Allir töluðu um besta liðið og að þetta lið ætti ekki heima á svona fjölskyldumóti. En svo byrjaði leikurinn og stelpurnar sem spiluðu á mótu gerðu sig lítið fyrir og unnu þann leik.
En aðal keppnin var þegar pabbi og bræður hans ásamt Þresti kepptu á móti elstu barnabörnunum (sem eru komir yfir fertugt). Þar var ég tekin á beinið fyrir leik og skömmuð fyrir að ætla að gera út af við gömlu mennina. Ég lofaði að hafa stuðtæki á kantinum og læknir var á staðnum.
Leikurinn byrjaði og gömlu rústuðu þessum ungu 4 -1 held ég. Það kom öllum á óvart hvað þeir voru í góðu formi. En ég vissi það áður en ég raðaði í liðin
Auðvitað eru menn sem ganga fjöll á hvernjum degi í góðu formi.
Um kvöldið var spurningakeppni sem var mjög skemtileg og spennandi milli bræðra og systra (Börn ömmu lillu). Þar fóru stelpurnar með sigur, en aðeins með einu stigi.
Svo á eftir var pub qiz og svo fjöldasöngur með tveim gítarspilurum. Svo var dansað fram eftir nóttu.
Nú fara skólarnir að byrja og mér finnst sumarið vera búið.