Blogg

31.12.2008

Gamlárs

Við höfum tekið þessa síðustu daga með ró. Marteinn og Brynhildur fóru á leikskólann þessa tvo vinnudaga milli hátíða. Þau vöknuðu að vísu eki fyrr en kl 9 á morgnana. Það hefur ekki gerst fyrr, ég meina aldrei nokurn tíma fyrr hefur Marteinn sofið svona lengi. Stóru strákarnir hafa farið seint að sofa og vaknað seint, við höfum ekkert verið að vekja þá því að þeir eiga hvort sem er eftir að vaka óvenju lengi í kvöld.
Reyndar hefur Ásbjörn verið svolítið skrítin með að sofa svona mikið frameftir, einn daginn hélt hann að það væri miðnætti þegar hann mætti fram og sá að það var kveikt á sjónvarpinu.
Svo heyrðum við hann tala í símann og þá sagðist hann hafa vakað síðan sjö um morgunin og hann hefði verið einn heima að lesa Andrésblöð. Ég veit ekki hvort hann hefur sofið of mikið eða of lítið.
Það er mikil spenna í tveim strákum í okkar fjölskyldu fyrir sprengjunum. Þeir smella á sig gleraugum og rjúka út um leið og minnst er á flugelda. Það eru Benni og ...... MARTEINN! Já sá litli er sjúklega æstur þegar háfaði og ljós eru annars vegar. Ásbjörn og Brynhildur halda sig innann dyra. Ásbjörn vill halda á stjörnuljósum en ekkert meir, Brynhildur er logandi hrædd við þetta.
Við keyptum bland af "strákasprengjum" fyrir stóru strákana en Benni fær heiðurinn af því að kveikja í öllum litlu, með aðstoð sprengjusérfræðings heimilisins eða löggilds aðstoðarmanns.

Við fjölskyldan óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum fyrir það gamla.

Skrifað 31.12.2008 kl. 15:04 af Igga

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.12.2008

Árið er senn á enda

Nú eru stóru strákarnir komnir heim. Við pabbi brunuðum suður og sóttum þá í gær. Við vorum frekar seint á ferðinni vegna óviðráðanlegra orsaka. Litlu biðu spennt heima og héldu sér vakandi þangað til þeir stóru komu. Við reyndum að fá þá til að bíða með að opna pakkana sem biðu eftir þeim en svo var ákveðið að opna bara. Þau litlu voru jafn spennt og þeir stóru. Hafþór, Olga og mamma og pabbi komu og það var mikið fjör. Kassarnir voru svo stórir sem voru utan um pakkana að Marteinn notar þá sem hús í dag. Þeir fengu sitt hvorn rafmagnsbílinn og svo Fatboy stóla til að nota í herbergjum sínum og þegar er verið að horfa á sjónvarpið. Síðan voru fótboltabuxur, vetlingar,bækur, ullasokkar og peningar í hinum pökkunum. Þeir eru hæst ánægðir með þetta allt saman.

Við fórum svo í göngutúr í dag, Marteinn í kerru, Brynhildur í stigvélum að sulla í pollum og strákarnir með bílana sína.
Fullorðnafólkið er að horfa á boltann núna og við hin (sem hofum ekki áhuga á bolta) erum að leika.

Núna bíður Benni spenntur yfir því að fara og kaupa rakettur. Ég er ekki hrifin af því að hann fái að skjóta upp, en svona strákar verða víst að fá að skjóta upp, annars fara þeir bara með þetta í laumi og það er verra en hitt. Við höfum reynsluna á svona gaurum sem fikkta, sá hin sami er staddur hér og verður um áramótin. Hann tekur strákana í kennslu og les yfir þeim mistökin sem hann gerði á sínum yngri árum.

Í þessum töluðu orðum er Ásbjörn að hjálpa ömmu sinni að brjóta saman dúka. Hann er voðalega duglegur að hjálpa við heimilisverkin emoticon

Skrifað 28.12.2008 kl. 13:29 af Igga

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.12.2008

Jól 2008

Mikil spenna var í gær hjá yngstu börnunum og gátu þau varla beðið eftir því að fá að opna pakkana. Spennan var þó aðeins meiri hjá Brynhildi því Marteinn er varla búinn að fatta þetta með jólin og pakkana, hann var þó alltaf sáttur við að fá gjöf á morgnana sem hann var alltaf látinn sækja út í glugga!
Marteinn gerði nú það sem við var búist þegar hann fékk að snerta pakkana og reif af þá miða sem hann komst í. Við lentum í smá vandræðum þegar verið var að lesa á pakkan en við giskuðum bara á það sem við vorum ekki viss um (þ.e. frá hverjum pakkinn var og hver átti að fá hann) á endanum voru allir ánægðir.



Brynhildur fékk að opna einn pakka fyrir mat, svona til að létta á spennunni, og valdi sér prinsessupakka sem var að sjálfsögðu bleikur á litinn. Afi hennar var að kenna henni að banka í pakkana til að heyra hvað væri inni í honum (eins og var gert í gamla daga!).


Við vorum svo komin heim í Lækjartún snemma, þau yngstu voru orðin útkeyrð og sofnuðu fljótt og fallega í sínum rúmum. Þau vöknuðu svo ekki fyrr en kl. 8.30 í morgun og ég man ekki eftir því að það hafi gerst lengi án þess að einhver sé veikur.

Erum svo á leiðinni í jólakaffi í Austurtún til Afa Bjössa og Ömmu Signýjar núna upp úr þrjú.

P.s. Brynhildur gerði tilraun til að tala við jólasvein sem kom á Þorláksmessu með jólakortin. Það hefur alltaf endað með gráti en... "núna er hún sko orðin þriggja..."

Skrifað 25.12.2008 kl. 14:47 af Sverrir

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.12.2008

Aðfangadagur

Dagurinn í dag er tekin með ró. Brynhildur er að horfa á barnaefnið og Marteinn gengur um allt í leit að einhverju til að fikta í.
Það er ósköp rólegt hjá okkur. Við skelltum okkur yfir í Austurtúnið eftir að Mateinn hékk í útidyrahurðinni og öskraði amma afa! Hann er sátur núna að vera komin hingað yfir og Brynhildur líka að fá að vera hjá Olgu sinni.
Næst á dagskrá er að fara með jólapakkana í hús.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla

Skrifað 24.12.2008 kl. 12:02 af igga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.12.2008

Þorláksmessa

Nú eru jólin að koma..... En einhvern vegin er ekkert eins og þau séu á næsta leiti. Það er úrhellis rigning og rok. Snjórinn sem við eum búin að safna síðan í haust er allur að fara.
Við erum búin að bragða á dýrindis skötu mmm... Vel kæst með hangifloti. Marteinn hefur voðalega gaman af þvi að lykta af vondri lykt og hann var einum of lengi fyrir minn smekk ofan við rjúkandi skötuna og sagði mmmmm... en svo fljótlega ðökk! Við erum öll laus við kvefið sem við vorum með í morgun.

Strákarnir eru farnir suður og koma aftur á laugardag. Þeirra er sárt saknað. Það er alltaf jafn erfitt að vera án þeirra á jólunum. Brynhildur er orðin það stór að hún spáir mikið í afhverju strákarnir koma ekki fyrir jól. Marteinn spyr líka um þá, og leikur sér mikið inn í herbergjum þeirra, þeim til ama.

Allir pakkar eru læstir niðri í geymslu hjá mömmu. Það var ákveðið að geyma allt þar eftir yfirlýsingar Benna um að hann ætlaði að finna pakkana og skoða. En það voru ekki börnin sem komust í þá, heldur hund skrattinn. Mamma kom að einum pakkanum rifnum og nammið sem var í honum nærri búið. Það er spurning hvort þarf að passa meira börnin eða hundinn. Annars eru þau litlu frekar róleg yfir þessu öllu saman. Brynhildur er spenntust yfir því að fá að vera í sparikjólnum allann daginn á morgun.

Hafþór og Olga eru á leiðinni, þau ætluðu að koma í gær en veðrið bauð ekki upp á það.

Svo bíða allir spenntir eftir jólasveinunum sem bera út jólapóstinn í kvöld. Við ætlum að reyna að muna eftir myndavélinni og smella af þeim litlu þegar sveinki kemur.
Þau hittu sveinka á litlu jólunum í skólanum og líka á jólaballi í leikskólanum. Þau voru ekkert hrædd, heldur spjallaði sá litli bara við hann en jóli átti frekar erfitt með að skilja litla mann. Það er spurning hvernig hundurinn bregst við jóla.

Skrifað 23.12.2008 kl. 12:43 af Igga

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.12.2008

jóla

Skoða nánar

13.12.2008

í fjárhúsum

Skoða nánar

8.12.2008

Meira skraut, meira skraut...

Skoða nánar

3.12.2008

jólastúss

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 33
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 190
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 224421
Samtals gestir: 61647
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 11:39:35

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

15 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

16 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

26 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

24 daga

Guðný 1 árs

eftir

16 daga