Blogg

30.1.2009

Þorrahelgi

Nú er þorrablót á morgun. Allir á þessu heimili bíða spenntir eftir skemmtiatriðum ársins. En þar er amma Signý í einu af aðalhlutvekum. Frést hefur að hún sé hörku leikkona. Handritshöfundur kom aðeins við hérna í gærkveldi og hún sagði að þessi hópur sem væri í nefnd þetta árið myndi rúlla þessu upp. Að þetta væru hörku sönghópur með mikla leikhæfileika.

Krakkarnir fá að sjá generalprufu á morgun og Benni og Ásbjörn eru mjög spenntir.

 

Við Sverrir erum búin að kaupa miða en við erum ekkert sérstaklega ballhæf svo við reiknum ekki með að dansa frameftir en Sverrir er óléttur.

Það er bara spurning um hvort ég eigi eitthvað dress til að fara í. Ég man eftir því í gamladaga þegar allar konur bæarins saumuðu kjóla og það gekk allt út á að vera í sem flottasta kjólnum. Svo eitt árið eftir að ég fór að fara á þorra þá mætti einhver konan í buxum en ekki dragt og það var umtalað um hversu ósmekkleg sú kona var. En svona er þetta ekki víst lengur. Fólk tímir ekki að mæta í flottustu förunum sínum vegna ólyktar (þá aðallega yngra liðið).  Nú eru konur í flottum síðkjólum innan um aðrar í gallabuxum (þá er ég ekki að setja út á neinn). Svona hefur þetta allt saman breyst. Sem er bara ágætt, þá er maður ekki eins stressaður að gramsa í skápunum. Bara að ég passaði nú í kjólinn sem Finna frænka gaf mér um árið, þennan sem hún notaði á þorra um 1965........

 

Nú þarf að fara að ákveða hvar litla barnið á að fæðast. Ég er mikið að hugsa um að prófa að eiga á Akranesi. Ég hef heyrt að þar sé frábært að vera og þar geti maður fengið að liggja inni í 3 daga án samviskubits um að vera að taka pláss af einhverri annarri. Svo má pabbinn líka vera allan tíman. Er þetta rétt? Hefur einhver verið þar?

 

Ég er farin að huga að því að finna til föt og koma fyrir auka rúmi hjá okkur. Það verður ansi þröngt hjá okkur í svefnherberginu en dótið er bara út um allt eins og gengur og gerist hjá barnafólki. Það sem við erum að vona er að Marteinn hætti að vakna á nóttunni og sofi þegar nýja barnið vaknar. Er þetta ekki dásamlegt, heitasta óskin er að fá eina nótt án þess að vera vakin með öskrum.
 

Sem betur fer þá eigum við allt sem við þurfum fyrir þetta barn. Það er til 15 ára gamall vagn, bílstóll sem rétt nær að vera nógu ungur til að vera löglegur og auka rimlarúm. Það eina sem ég hugsa að okkur vantar er systkinakerra, sem væri gott að eiga til að þurfa ekki aðstoð í hvert sinn sem við förum út að labba.

Skrifað 30.1.2009 kl. 8:41 af Igga

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.1.2009

Sjúkket

Nú fer allt að komast í gang hjá okkur.
Brynhildur er farin að hressast heldur betur og hefur verið hitalaus í tvo daga. Stefnan er að fara með hana á leikskólann á morgun. Hún er orðin töluvert óþekkari en vanalega en er alveg sama þótt hún fari ekki út. Ég sagði henni að núna ætluðum við að fara til ömmu hennar og sækja svo Martein í dag, en sú litla vildi frekar hanga heima eins og hún orðaði það. En við fórum og hún var glöð þegar við vorum komnar út í sólina.

Stóru strákarnir fóru á skíðaæfingu sem var haldin á túni við Geirmundastaði (þar er snjór). Ásbjörn með sólgleraugu á nefinu í tilefni dásamlegs veðurs. Ásbjörn verður betri við hverja æfingu og Benni er að læra alls konar tækni. Reyndar var Benni frekar þreyttur í dag, hann laumast stundum til að vaka inn í herberginu sínu fram eftir og það gekk illa að vekja drenginn í morgun. Ekki nóg með það þá var íþróttatími eftir hádegi og hann kom heim og borðaði og svo strax á skíðaæfinguna og þegar það var búið þá voru 10 mínútur í fótboltaæfingu, sem hann fékk að sleppa við í þetta skipti vegna sifju. Núna erum við Sverrir að skiptast á að láta hann klára að læra og svo fer hann beinustu leið í bólið.
Draumur Benna er að keppa á Andrésarleikunum á Akureyri.

Auglýsing:
Bílar til sölu
Toyota corolla 93
Chrisler town and coutry 2001
Vel með farnir bílar í alla staði.
 A.t.h. seljum ekki ættingjum þessa bíla!

Skrifað 27.1.2009 kl. 20:32 af Igga

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.1.2009

...Og veikindin halda áfram...

Loksins þegar Ásbjörn er farin að hressast þá fékk Brynhildur hita á föstudag og okkur leist ekki á blikuna þegar hún fór að roðna ískyggilega í framan og þroti í kinnum. Svo í dag þá kölluðum við út Guðmund lækni sem greindi hana með streptakokka (vonandi skrifað rétt). Núna er barningur við hana að taka lyf við því. Það er farið að ganga betur með Ásbjörn að taka töflur (en þarf þó að mylja þær) en núna á að reyna fá prinsessuna til að gleypa hálfa eða mylja hana niður og taka með safa. Sú litla ældi í fyrstu tilraun og frussaði svo öllu á pabba sinn í næstu. Núna var hún send duddu laus inn í herbergi og fær ekki að koma fram fyrr en hún er tilbúin til að reyna aftur. Hún er búin að þrjóskast núna í tæpa tvo tíma.

Þegar svona veikindi eru og pabbinn að vinna þá er gott að hafa afa sem nennir að vera með þeim sem eru hressir. Pabbi fór með strákana í salinn í gær. Þar var spilaður fótbolti og síðan fór Benni með vini sínum í sund. En það er ekki þorandi að hleypa Ásbirni í sund svona stuttu eftir röra aðgerðina. Hann var alveg sáttur við að fá ekki að fara í sundið og hjálpaði mömmu sinni hérna heima í staðin.Við buðum í kaffi og það fylltist húsið af gestum og þegar mest var þá voru 7 börn í leik. Sum fengu kúlu á haus eftir barning en allir voru hressir.

Stóru strákarnir fóru á skíðaæfingu í dag með afa Bjössa. Ásbjörn ætlar sér að verða góður á skíðum og planið hjá okkur er að næsta vetur þegar ég get farið með honum á skíði þá förum við í ferð með nesti og höfum gaman. Ég vona bara að þau litlu fari að hressast svo að við getum öll farið á næstu æfingu.

Skrifað 25.1.2009 kl. 15:38 af Igga

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.1.2009

Komin heim

Við Ásbjörn komum heim í gær. Aðgerðin var kl 10 og gekk vel. Læknirinn sagði að þetta hefði ekki litið vel út (inní eyranu) en vonandi jafnar hann sig að fullu en á að fara aftur í heyrnamælingu í vor. Hann var furðu fljótur að jafna sig eftir svæfingu og tók ekki annað í mál en að fara á Mcdonalds strax á eftir. En ég var búin að lofa honum að velja stað til að borða á.
Við fórum svo fljótlega af stað norður. Minn maður lék sér í nýja bílnum en sofnaði svo á Holtavörðuheiðinni og svaf alla leið heim. Það var hvasst en nánast autt svo að allt gekk vel og bíllinn reyndist vel.
Við vorum svo pínu þreytt eftir svona langan tíma að heiman.

Brynhildur svaf frekar illa í nótt og endaði svo með miklum hita og er hund veik. Hún fór aðeins á fætur í dag og bakaði skúffuköku en sofnaði fljótlega aftur.
Ásbjörn er hin hressasti í dag, hann er núna með ömmu sinni og Marteini að stússast eitthvað.
Benni er búin að fara í tvo gítartíma og var svo spenntur að sýna okkur hvað hann lærði í dag að hann fór ekki einu sinni úr úlpunni áður en hann greip gítarinn til að spila fyrir okkur. Núna situr hann í stofusófanum og semur lag.

Allur snjórinn er meira og minna farin og ekkert verður af skíðaæfingum þessa vikuna. Allir á þessu heimili eru pínu svekktir því skíðaáhugin er mikill. Vonandi kemur smá snjór fyrir okkur.

Ég er nokkuð aum enþá eftir hana Hörpu frænku mína. En ég finn að ég þurfti á þessu að halda. Það er eins og blóðflæðið hafi farið af stað aftur. Ég mæli með henni, en ekki til að fara í slökun emoticon

Nú ætla ég að kenna Benna að steikja hakk áður en villidrengirnir koma heim.
Já og svo óskum við Sverri til hamingju með daginn, en hann fær ekkert dekur þetta árið heldur safnast það bara upp í eitt stórt sem hann fær seinna (kannski svona um fimmtugt).

Skrifað 23.1.2009 kl. 17:51 af Igga

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.1.2009

Læknaferðin mikla

Það tókst að kaupa bíl eins og við vonuðumst til. Þeir sem þekja mig vita að ég get verið frekar pirrandi og frek þegar kemur að bílakaupum en í þetta skipti ákvað ég að segja ekki orð og láta yfirmanninn ráða för. En svo gat ég ekki meir.... jók, ég held að Sverrir hafi verið sáttur við mig í þetta skiptið. (hann kannski segir síðna hlið málsins)
En fyrir valinu varð Nissan Pathfinder árgerð 2007, grænn (tengist ekkert pólitík)

Sverrir og meirihluti krakkanna fóru norður í gærkveldi en ég og Ásbjörn vorum eftir.
Eyrnalæknir Ásbjarnar tróð honum að hjá sér og við vildum ekki tapa þeim tíma. Sem betur fer...... Það kom í ljós að drengurinn þurfti nauðsynlega að fá rör og það strax. Hann Það var svo gert núna í morgun. Hinumegin við gangin hjá lækninum er barnalæknir og við fórum þangað líka og eftir röntkenmyndir og viðtal þá kom í ljós svæsin kinnholubólga. Nú er Ásbjörn komin á pensilínkúr sem felur í sér hjúmongös töflur sem hann á MJÖG erfitt með að gleypa. En ekki nóg með það þá er heyrnin ekki góð hjá honum. En vonandi lagast það með rörunum, þó svo að heyrnalæknirinn sem við fórum til fyrir stuttu sagði að það gæti verið varanlegur skaði hjá honum.

Marteinn fór til meltingafæralæknis á mánudag og við hjónin erum búin að taka sýni úr bleium eftir að hann hefur gert nr 2. ojoj núna bíðum við eftir niðurstöðum úr því. Ég ætla rétt að vona að hann fari að lagast í maganum því að það er ekkert grín að vera alltaf með niðurgang. Hann fór líka í blóðprufu og stóð sig eins og hetja þar. Brynhildur horfði spennt á, en var samt sem áður ekkert að finna mikið til með bróður sínum.

Við Ásbjörn áttum svo góðan dag bara tvö saman. Við byrjuðum á því að heimsækja Hörpu frænku og hún valtaði aðeins yfir mig (nuddaði) og ég er helv... aum. En það er alltaf gott að láta hræra aðens í bólgnum skrokknum. Við fórum í verslunarferð og svo í heimsókn til Daggar frænku. Þar voru Patrik og Þröstur í heimsókn og Ásbjörn og Patrik léku sér við hundinn Týru. Þeir urðu bestu félagar og föðmuðust bless.
Nú ætti heilsan að komast í lag hjá gaurunum í fjölskyldunni. þá er bara að finna lækni sem getur reddað okkur óþekktarsprautu fyrir Brynhildi. Þvílík drama drottning þar á ferð.......

En ég má til með að hneikslast aðeins. Hvað er málið með þessi mótmæli í bænum? Fólk er að mæta þarna með börn og jafnvel ungabörn. Er ekki í lagi? krakkarnir eru öruglega hræddir í þessum hávaða og svo er alltaf von á gasinu eða þessum heimatilbúnu sprengjum. Díses kræst hvað ég get orðið reið. Það má mótmæla fyrir mér en lítil börn eiga ekki að vera á stórhættulegu svæði þar sem brjálaðingar eru. Fólk er fíl!

Skrifað 22.1.2009 kl. 23:03 af Igga

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.1.2009

Þriðjudagur

Skoða nánar

17.1.2009

Helgin

Skoða nánar

12.1.2009

Loksins snjór

Skoða nánar

11.1.2009

Popp og kók

Skoða nánar

7.1.2009

Okei okei!

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 81
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 224634
Samtals gestir: 61716
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 07:19:35

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

13 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

14 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

24 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

26 daga

Guðný 1 árs

eftir

14 daga