Blogg

27.2.2009

Þema

Við eldra liðið fórum til tannlæknis í morgun. Ásbjarnar tennur líta mjög vel út engin hola og allt í góðu. Benni var líka í góðum málum tannskemda séð,  það þarf að skorufylla endajaxlana hjá honum og síðan ekkert sérlega góðar fréttir. Hann er með skakt bit (læst bit) og þarf að fara í tannréttingar. Hann fær að öllum líkindum góm sem hann þarf að vera með í nokkra mánuði en við þurfum að fara til sérfræðings til að fá úr þessu skorið, við þurfum að gera þetta fljótlega vegna þess að það eru að koma niður augntennur sem ekki er pláss fyrir.
Ég var að sjálfsögðu í góðum málum (eins og alltaf) en önnur saga með Sverri sem ekki hefur farið til tannsa í hmmm.... langan tíma..........

Í næstu viku er þemavika í skólanum og þá verður fjör. Þeir bræður eru kátir með að sleppa við heimanám alla vikuna. Benni er í íþróttahóp og þau verða í hefðbundnum og óhefðbundnum íþróttum. Fara í sund og sleðaferð og ýmislegt spennandi.
Ásbjörn er í útivistahóp og þau fara í sleðaferð, hestaferð, fjöruferð, skoða fyrirtæki í ferðaþjónustu, læra að klæða sig til útivistar og fá leiðsögn í snjóhúsabyggingum. Það verður mikið að gera hjá þeim og ég held rosa gaman.

Brynhildur var að horfa á stundina okkar í gær og þar var saga þar sem var verið að tala um uppáhalds dót og sögupersónan spurði hvert uppáhalds dót krakkana (sem voru að horfa) hverð þeirra uppáhalds dót væri. Brynhildur var fljót að svara "dutturnar mínar og bleika teppið".

Hr Gordon var óþekkur í gær og fór í skammakrók. Við vorum með slátur í matinn og svo var mikið að gera eftir mat því að við vorum að fara með Benna á spilakvöld og ég gekk svona semí frá í eldhúsinu og Sverrir var önnum kafin við að koma yngri deildinni í háttinn. Svo heyrðum við að eitthvað datt í gólfið inn í eldhúsi og þegar við komum þangað var fíflið inn í þvottahúsi mjög skömmustulegur. Svo skoðuðum við aðstæður í eldhúsinu og þá var restin af slátrinu horfin. Gordon hafði stokkið upp á borð og étið allt sem var eftir í einum rikk, ég er hissa að hann kafnaði ekki þegar hann solgraði í sig vambirnar í heilu lagi, því að hann var ekki nema nokkrar sekúndur að þessu.

Við Sverrir fórum með Benna á bekkjarkvöld í gær og þar var spilað. Það var rosa gaman, allir með nesti og svaka fjör. Brynja fænka og Ásdís komu og pössuðu hin á meðan og það fannst þeim yngri geggjað, enda er Brynja stundum kölluð amma, ætli hún sé ekki afleysinga amman okkar.

Skrifað 27.2.2009 kl. 14:10 af Igga

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.2.2009

Myndir

Hér eru myndir frá öskudeginum. Marteinn tók það ekki í mál að fara í súperman búninginn og svo vildi hann bara fara heim þegar við komum á ballið, hann þolir ekki háfaða. Hann var með hettuna og húfuna á sér allan tímann.
Benni var stórslasaður

Ásbjörn er skuggalegur

Brynhildur ánægð með eyeliner og varalit

Ásbjörn og Brynhildur marseruðu saman og það tókst einstaklega vel hjá þeim.

Skrifað 26.2.2009 kl. 17:22 af Igga

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.2.2009

Á öskudag

Við héldum upp á afmæli Marteins á mánudaginn, þá voru allir komnir heim og gátu tekið þátt. Það voru bakaðar hátt í 50 bollur, sem kláruðust á endanum. Ég er ekki frá því að verða bumbullt þegar ég hugsa um allan rjómann, oj.



Núna í tilefni þess að Marteinn er orðin allt of gamall til þess að sofa inn í hjá foreldrum sínum, þá var tekin sú ákvörðun að þau yngstu skyldu fá stóra herbegið og hjónin í minna herbergi. Við settum saman rúm og pússluðum þessu öllu saman í gær og til varð geggjað leikherbergi. Við eigum svo eftir að mála nýja herbergið okkar áður en við færum okkur þangað inn. Í millibils ástandinu sofum við í stofunni.
Það gekk ljómandi vel að láta Martein sofna í stóru rúmi. Ég hélt að hann myndi koma fram bara af því að hann getur það. En nei ég bauð honum góða nótt og hann fór að sofa, og það furðulega er að hann svaf frekar vel (miðað við hann). Hann hafði sparkað af sér sænginni og var frekar kaldur en var sáttur.


Í dag var svo náttfatadagur í leikskólanum og svo er grímuball seinna í dag. Stóru strákarnir foru svo sminkaðir áður en þeir fóru út að syngja fyrir nammi. Ég fór á rúntinn á bílnum og þá sá ég að þeir voru á leiðinni heim vegna þess að það er svo kalt. Ég skutlaði þeim með vinum sínum og nú eru þeir að jappla á namminu.
Brynhildur verður senjótíta í háhæluðum skóm á ballinu, Marteinn verður súperman, Ásbjörn er pönkari og Benni stórslasaður skíðamaður.

Skrifað 25.2.2009 kl. 12:05 af Igga

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.2.2009

Afmæli Marteins

Hann Marteinn okkar er 2 ára í dag

 

Hann var alltaf þægur og góður



Svo fór hann að reyna að bjarga sér sjálfur


Tók að sér ýmis verkefni


Duglegur í vinnu


Gerir heimaverkefnin fyrir eldri bræður sína


Passar upp á eldri systkini sín


Til hamingju með daginn Marteinn

Skrifað 22.2.2009 kl. 21:38 af Igga

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.2.2009

Afmæliskveðja

Sverrir átti afmæli í gær, og í tilefni þess settum við krakkarnir inn myndir af Sverri

Einu sinni var Sverrir frábær íþróttamaður


Svo kynntist hann konu og henni fylgdu tveir strákar



Öllum samdi einstaklega vel


Svo eignaðist hann Brynhildi og giftist sinni heittelskuðu síðar sama ár


Svo kom Marteinn í heimin 2007


Hjónakornin fluttu til Hólmavíkur


Allir fóru til útlanda og síðar fór Sverrir í augnaðgerð og notar ekki lengur gleraugu.


Núna er Sverrir gamall fjölskyldufaðir á Hólmavík og von er á 5. barninu, ætli hann gráni mikið meira?


Til hamingju með afmælið í gær

Skrifað 20.2.2009 kl. 20:00 af Igga

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.2.2009

Börn eru krútt

Skoða nánar

17.2.2009

Klór klór

Skoða nánar

16.2.2009

Hálkan

Skoða nánar

13.2.2009

Að vera foreldri

Skoða nánar

9.2.2009

Og það snjóar...

Skoða nánar

2.2.2009

Frost á fróni

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 91
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 224877
Samtals gestir: 61793
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 01:39:10

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

11 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

12 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

22 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

1 mánuð

Guðný 1 árs

eftir

12 daga