Blogg
31.5.2009
Hvítasunnan
Nú eru strákarnir farnir í sumarfrí til pabba síns og verða þar næstu sex vikurnar. Ég lofaði þeim að ég yrði orðin mjó þegar þeir kæmu til baka. Þá er eins gott að fara að taka sig á......
Marteinn og Brynhildur gera sér ekkert grein fyrir því hversu langt er þangað til strákarnir koma aftur. Marteinn kallar þegar hann kemur inn heima, HALLÓ.... og bíður eftir svari. núna í morgun var hann að leita að Ásbirni til að koma með sér að hoppa á trampólíninu.
Leikskólinn fer í sumarfrí 15. júní minnir mig. Þá verður Sverrir að vinna og Ásdís frænka ætlar að vera mér til halds og trausts og koma eftir hádegið til að viðra börnin þegar ég kemst ekki vegna ungabarns.
Við erum að fara í tvær fermingaveislur núna á eftir hjá Emil hennar Heiðu og Benna hans Bjarka.
Ég var að greiða Brynhildi og hún er komin með hálsmen og er í voða fínum kjól. Hún er svo mikið að spá núna og spjalla við fólk. Afi hennar var að kenna henni um æðafuglinn núna áðan og sagði henni frá dúninum og hvað kvennfuglinn heitir og karlfuglinn. Svo sagði hún kallinn heitir bliki og konan blika. Svo horfði hún á Himbrima stinga sér og ná sér í fisk. Hún spurði mikið og hefur greinilega sveitamannablóð í æðum.
Tölvan er búin að vera hjá okkur. Það hrundi allt, nema harði diskurinn vonandi. En það á eftir að koma í ljós. Ég vil nota tækifærið og minna ykkur á að geyma allar myndir á diskum það er helv.. fúlt ef allt glatast.
24.5.2009
Tölvubilun
Ásbjörn er ekki í eins miklum prófum og þarf ekkert að stressa sig yfir þesssu. Hann bíður við klukkuna á hverjum degi eftir að sundlaugin opni.
Við keyptum trampólín núna í vikunni. Það er mikið rifist um hver á að hoppa. Við erum að vinna í reglunum og fá þau til að taka tillit til hinna. Það er nú helst yngri deildin sem skilur ekki tillitsemina. Krakkarnir rjúka út þegar þau vakna og við þurfum að draga þau inn á kvöldin.
Sigga og Hákon komu um helgina með stelpurnar og bumbubúann. Það er vona á frænda í júní og við að sjálfsögðu losuðum okkur við slatta af strákafötum. Dagmar og Brynhildur eru rosa góðar saman en alltaf þarf Marteinn að skemma fyrir þeim og þær pirrast, en ef hann fengi bara að vera með þá væri hann til friðs (í 5 mín).
Hafþór og Olga komu á fimmtudag. Þau voru bara í aflöppunarferð og golfið var náttúrulega tekið á hverjum degi.
Núna er svo mikið rok að við þurfum að fara og binda trampólínið niður.
14.5.2009
Myndir
Hér er myndi af Guðnýju tekin í morgun.
P.S. Það eru komnar nýjar myndir í albúmið
13.5.2009
Grasekkjan skrifar
Sverrir er í Reykjavíkinni að kenna fólki að keyra bíla. Ég hefði frekar átt að fara því að hann er að kenna fólkinu að keyra hratt, stundum iða ég í farðþegasætinu þegar Sverrir keyrir því mér finnst hann oft fara frekar hægt, en svo er ég svo mikil kelling að þegar hann gefur eitthvað í þá kvarta ég líka. En svona eru víst konur og ekkert hægt að gera í því, og segja ekki orð.
Það gengur allt sinn vana gang hérna. Sumarið ekki komið en aðeins farið að hitna úti og alltaf sama rokið. Maður er orðin frekar pirraður á þessu veðri.
Ég fór með Guðnýju til Reykjavíkur á mánudag og við sóttum strákana. Benni átti tíma hjá tannlækni og við vorum þar í einn og hálfan tíma og kostaði sitt. Hann á að fá góm sem verður tilbúin í næsta tíma. Benna hlakkar mikið til að fá góminn og ég er ekkert að segja honum frá því að hann á eftir að bölva honum fljótlega.
Nýjustu fregnir herma að kindin hennar Brynhildar hún Öskubuska er að bera svo nú þarf að rjúka til og fara með Brynhildi til að sjá það.
Ekki meira að frétta í bili
7.5.2009
Ferðasaga
Við fórum til Akureyrar á fimmtudaginn. Við fórum af stað með þrjú í bílnum og tveir með húsbílnum. Síðan var skipt eftir óþekkt á leiðinni. Við tókum gott stopp í Staðarskála og þar hittum við Jón Kristinn frænda Sverris, sem er einmitt sonur Guðnýjar "eldri". Þar var spjallað og etið.
Við Gistum hjá Friðgeiri og Ingu og þar vildu krakkarnir vera, tóku ekki í mál að fara í heimsóknir, því að þar er svo flott trampolín. Strákarnir komu inn á kvöldin og voru varla búnir að opna augun á morgnana þegar þeir voru komnir út aftur.
Foreldrar Sverris komu svo frá Húsavík á laugardeginum og hittu okkur aðeins áður en við fórum í ferminguna hjá Antoni. En þar átum við á okkur gat, Marteinn í orðsins fyllstu... Hann beit Brynhildi svona hrikalega að það kom nærri gat. Hún var kæld með ísmolum og var aum og marin á eftir.
Jón Gunnar og Ella (foreldrar fermingabarnsins) alltaf jafn hress og gaman að hitta þau. Og svo er bara að sjá hvort Anton kemur í sumar til að halda titlinum á Hamingjumótinu í golfinu.
Við fórum svo í heimsókn í sumarbústaðin þar sem þau gömlu voru með húsbílinn, Ingvar með sitt fólk og Biggi og Kata. Þar var leikið fram eftir kvöldi og svo farið heim á Ak. Við renndum svo af stað heim um miðjan dag á sunnudag. Krakkarnir í stuði og ekki nálægt því jafn lúin og foreldrarnir.
Strákarnir (eldri) eru farnir til Reykjavíkur og koma aftur á mánudag. Sverrir og Marteinn eru voða duglegir að vera úti og við stelpurnar hérna heima á meðan. Brynhildi finnst voða gaman þegar við stelpurnar erum einar. Marteinn hefur verið að gera við bíla með pabba sínum og afa, ég veit ekki hversu mikil hjálp er í honum en það er allavega búið að koma öllum bílum í skoðun.
Sverrir fór með Toyotuna í skoðun í dag og hún flaug í gegn og núna tímir hann ekki að selja hana. Hann hefur tekið ástfóstri við þennan bíl :/
Sverrir og pabbi fóru á tónleikana hjá tónskólanum og Sverrir tók upp á video en vélin er eitthvað leiðinleg svo að það þarf að laga hana áður en við setjum þetta inn. Ég var heima í flensu á meðan, var með hita og steig ekki fram úr rúminu. Mamma fórnaði sér í að sjá um krakkana á meðan. Það var ömurlegt að verða veik akkúrat þegar drengirnir voru að spila á fyrstu tónleikunum sínum. En ég horfði á videoið, og þeir voru frábærir. Þeir klikkuðu ekkert, enda voru þeir mjög duglegir að æfa sig.
Guðný er aðeins farin að sofa úti í vagni, bara svona á meðan ég fer í hressingagöngu. Ég fór aðeins á mánudaginn og fékk harðsperrur eftir smá labb. Þvílíkt sem ég er í lélegu formi. Það kemur vonandi, Sverrir fór með mér í gær en ég nennti ekki að fara langt það er skíta kuldi og vindur.

