Blogg
26.6.2009
Nýjar myndir
Við erum svo búin að hafa það ágætt. Fara í heimsókn á Ós og gefa heimalingum úr pela og fara í fjöruferð og skoða hesta. Alltaf nóg að gera.
En síðast en ekki síst þá var villistrákurinn að ögra pabba sínum með því að þykjast ætla að henda snuðinu sínu í klósettið og um leið og pabbinn sagði EKKI þá fékk snuðið að fjúka. Síðan endurtók villistrákurinn leikinn aftur daginn eftir og þar með var hann snuðlaus. Þá var tekin ákvörðun um að þau myndu hætta með snuð. Sem þau hafa staðist með eindæmum vel. Brynhildur laumaðist reyndar upp í rúmið hennar Guðnýjar og sofnaði með snuðið hennar í gær en þau eru hætt að byðja um snuð og eru ekkert að reyna nappa snuðunum af Guðnýju (fyrir utan þetta eina skipti)
Í þessum töluðu orðum er villistrákurinn á leið í skammakrók, en það er ekkert nýtt heldur.
19.6.2009
Já núna kemur sumar!
Sverrir er í helgarfríi núna og planið er að það verði sól og blíða. Það er búið að lofa sundferð og fótbolta á morgun.
Brynhildur er búin að leika við Unu vinkonu sína í dag og ekki mikið fyrir þeim haft. Nema þá að fá yngri bræður þeirra til að láta þær í friði.
Við fórum aðeins í heimsókn inn á Ós og þar fékk ég kryddjurtir til að rækta sjálf úti í garði eða eldhúsglugganum. Drífa er með tré, blóm og kryddjurtir í gróðurhúsunum og það er brjálað að gera þar. Marteinn lék sér þar og varð fyrir árás þriggja heimalinga, en það fór vel og hann klóraði þeim eins og hundum.
Á meðan Brynhildur lék sér við Unu þá aðstoðaði Marteinn mig við þrifin. Við sópuðum og svo sótti ég handryksuguna og Marteinn sá um að ryksuga upp það sem ég sópaði, enda vanur að ryksuga flugur úr gluggunum. Ég lét hann svo bara ryksuga áfram á meðan ég gerði annað. En svo sá ég hann ekki og þegar betur var að gáð þá var gutti út í sandkassa að ryksuga.
Marteinn er vanur að leggja sig aðeins á daginn en það fer minnkandi í fríinu. Hann svaf ekkert í dag og þegar hann var að borða þá sagði hann "mamma ég er sibbinn" og síðan fór hann inn í rúm og sofnaði, en var ekki alveg tilbúin í að hátta og bursta.
Brynhildur er farin að leika sér við stelpurnar á svæðinu og núna í vikunni þá fékk hún að fara til einnar. En svo komu þær hingað til okkar og þá fannst mér hún eitthvað skrítin og svo sá ég það!!!!!!!!! Það var búið að klippa VEL í hnakkann á henni. Já og mamman í áfalli. Klipparinn fékk tiltal frá Sverri og Heiðu klippikonu. Ég var farin að vorkenna henni, en hún gerir þetta þá ekki aftur. Ég vona bara að barnið komi aftur í heimsókn hingað. Ég hef mestar áhyggjur af því að Brynhildur geri þetta við einhvern annan svona úr því að hún er búin að læra þetta. En það verður bara að koma í ljós. Hún er núna með mjög stutt í hnakkanum og búið að stytta hárið mjög (svona bob klipping).
Núna er Sverrir í rosa teiti hjá golfklúbbnum og Heilbrigðisstofnuninni. Það er verið að afhenda minningabikar um Sigfús lækni og síðan er partý í Austurtúni á eftir. Ég verð náttúrulega að vera heima með börnin, en hvað ætti ég annars að gera í partýi hjá golfklúbbnum ég fer aldrei í golf? (ein fúl)
En til að bæta hressa og kæta kellu þá átti Kristjana vinkona mín 30 ára afmæli 18. júní og hún heldur uppá það í reiðskemmunni á morgun. Og þá á að taka á því í ullarpeysu, með kúrekahatt og í gúmmískóm.
Til hamingju með daginn Kristjana
15.6.2009
Sumarfrí
Nú er leikskólinn farin í sumarfrí. Brynhildur er alltaf að spá hvort þau fari núna á leikskólann. Þau skilja ekkert hvað er vika og mánuður. Við sögðum Brynhildi frá því að við myndum flytja í haust og bentum henni á húsið en hún virðist vera búin að gleyma því núna. Sem betur fer því annars væri hún sí spyrjandi hvenær við færum í nýja húsið. Sverrir fer í frí í júlí.
Núna er ég að reyna að stíla inn á að krakkarnir sofi á sama tíma yfir daginn þ.e.a.s Marteinn og Guðný. Marteinn leggur sig í smá stund eftir hádegið og þá er eins gott að nota tímann til að gera eitthvað gagnlegt. Í dag var skúrað og núna er Brynhildur í baði og þau litlu sofandi en geta vaknað á hverri stundu.
Við mamma fórum í sund á laugardag með krakkana. Guðný svaf í vagni á meðan, við fengum að setja hana inn fyrir girðinguna hjá sundlauginni. Það gekk svona ljómandi vel og við náðum aðeins að tana kroppinn. Ég er reyndar á því að það sé ekki komið sumar hérna því að ef sólinn vogar sér að koma á er ískaldur vindurinn mættur á svæðið líka. Núna er reyndar 14 gráðu hiti en ekki mikil sól og smá gola.
Við erum ekki búin að plana neitt í sumarfríinu nema að mæta á ættarmót í ágúst. Við gerum nú samt ráð fyrir því að fara til Húsavíkur og svo til Reykjavíkur að erindast.
Planið er að vera líka mikið á Sandnesi eins og vanalega. Við fórum í Hólmann um helgina, reyndar stóðum við Sverrir í fjörunni og fylgdumst með krökkunum aðstoða ömmu sína og afa taka síðasta dúninn. Brynhildur söng allan tímann og það heyrðist í land. Marteinn braut aðeins eitt egg þegar hann hélt á því og nennti því svo ekki lengur. Þeim fannst æðislegt að fá að fara í árabát og vera í björgunarvestum.
Við Sverrir erum búin að vera að hanna og teikna upp eldhúsinnréttingar á netinu undanfarna daga. Við stefnum á að vera búin að ákveða okkur þegar við fáum húsið, sem er í haust. Það er mikil vinna framundan þegar við fáum húsið, ætli við notum ekki vetrarfríið hans Sverris í þetta og ráðum svo pabba í vinnu. Hann hlýtur að samþiggja 150kr á tímann.
12.6.2009
Húsakaup
Nágrannarnir ekki af verri endanum, Stína Gunnars og co. Og svo er þetta endahús í götunni þannig að það er engin umferð.
Við fáum afhent í haust, svona sirka bát í október. Þetta er náttúrulega frábært hús með góðu útsýni yfir fjörðinn og stutt í skólann og til ömmu og afa í Austurtúnið. Ekki verra að við sjáum þá á eftir krökkunum þangað.
Við erum ekkert búin að segja yngstu deildinni frá þessu, enda held ég að Brynhildur yrði svo spennt að hún gæti ekki beðið svona lengi. Það er nefnilega þessi fíni búkofi þarna.
Svo eru komnar nýjar myndir í albúmið
8.6.2009
Heimkoman
Við komum heim seint í gærkveldi. Krakkarnir búnir á því, nema Guðný sem spangólaði afturí frá brú. Hún talaði við sjálfa sig og hló eins og einhver væri að skemmta henni, kannski það hafi verið Ennismóri?
Krökkunum finnst voða spennandi að fara í ferðalag en gleyma samt hvað það er óþolandi að keyra svona lengi. Brynhildur spurði erum við komin?? Núna? Núna? Mjög reglulega á leiðinni.
Við uppgötvuðum að við förum sjaldan með yngri deildina í Borgina, vegna þess að á sunnudeginum þá var Brynhildur mjög hugsi í aftursætinu og sagði svo "heyrðu hvar er félagsheimilið í Reykjavík?"
Við komum við í Blómaval og Krónunni áður er við lögðum í hann heim. Brynhildi finnst voða gaman að fá litla körfu og vera með mér í búð, en Marteinn og Guðný sváfu út í bíl með pabba sínum (hann vakti). Brynhildur var fljót að fylla körfuna af alls kyns vörum, m.a. var þar diskar fyrir afmælið hennar, græn epli, glös fyrir bræður sína, bolti fyrir Martein, tyggjó og pasta. Þetta reddaði hún sér alveg sjálf.
Við hjónin vorum svo í garðvinnu í dag. Settum niður blóm og löguðum til í garðinum, svona það sem var eftir, eftir klippingarnar í vor. Núna verðum við að bíða og sjá hvort Brynhildur og Marteinn komi ekki svo inn færandi hendi með blóm fyrir mig, en það er daglegt að ég fæ fíflavönd frá þeim.
Svo verður nú að taka það fram að mamma og pabbi fóru til Akureyrar um helgina og skruppu á golfmót á Grenivík. Það var svona Texas scramble mót og þau spiluðu með Jóni Gunnari og vini hans, já og urðu í fyrsta og öðru sæti!

