Blogg

22.7.2009

Er eitthvað að frétta?

Já nú kemur smá upprifjun á undanförnum dögum. Við erum búin að vera svolítið upptekin af okkur sjálfum undanfarið þannig að ekki hefur fundist tími til að blogga.

Brynhildur átti afmæli þann 13. júlí og var haldið upp á það á Hólmavík þann 12. Svakalega flott prinsessukaka var aðalnúmerið í afmælinu og að sjálfsögðu prinsessuþema í öllu (nokkrir strákar fengu spiderman diska sem voru einnig í boði). Brynhildur var hæst ánægð með daginn og tilbúin að fara suður til Reykjavíkur daginn eftir...



Ekki vildi nú betur til þegar við vorum rétt búin að koma okkur fyrir í fínni íbúð sem við fengum leigða í Höfuðborginni að Brynhildur fór að kvarta yfir verkjum í maga. Hún var búin að vera með upp og niður verki í nokkurn tíma en var að verða góð af því þegar hingað var komið. Við fórum með hana í skoðun á bráðamóttökuna á Lansanum og þar var hún lögð inn strax þar sem hún var að þorna upp og með einhverja óværu í meltingarveginum. Heilmikil rannsókn fór í gang og endaði með því að hún var þar í eina nótt og var með næringu í æð allan tímann.

Eftir að hafa verið endurnærð og fengið lyf var hún send í dagsleyfi og var svo útskrifuð daginn eftir. Við fórum heim til Hólmavíkur á fimmtudaginn og var Brynhildur allt önnur eftir þessa innlögn.




Marteinn lenti í smá slysi í afmælinu hennar Brynhildar. Hann var að hlaupa með leikfangaflugvél frami í andyri og hrasaði. Flugvélin stakst í kinnina á honum þannig að það kom risa marblettur á kinnina. Mikil bólga fylgdi svo í kjölfarið og er marið að ganga til baka hægt og rólega. Brosið hans er búið að vera svolítið skakkt síðan en það er að lagast. Spáið í hvað hann var heppinn að hafa ekki stungið flugvélinni í augað eða munninn!



Marteinn var svo hinn ánægðasti á Bryggjuhátíðinni á Drangsnesi þegar hann horfði á þegar Þyrla Landhelgisgæslunnar kom og bjargaði tveimur mönnum úr sjónum, flaug nokkrum sinnum yfir mannfjöldann og lenti svo á fótboltavellinum. Okkar maður fékk að skoða gripinn en var svoldið feiminn þegar á reyndi.

Benni og Ásbjörn fengu líka að fara í þyrluna og skemmtu þeir sér vel á Bryggjuhátíðinni.



Brynhildur fékk svo að hitta flugstjórann í ferðinni en það var einmitt nafna hennar Brynhildur. Batterýið í myndavélinni var þá búið og ekki náðist mynd af þeim saman. Okkar Brynhildur horfði aðdáunaraugum á þessa hetju og spurning hvort hún breyti framtíðaráformum sínum úr því að verða prinsessa í að fljúga Þyrlu?

Við enduðum svo daginn á að fara á Sandnes (ættaróðalið) og hittum þar nokkra ættingja. Búkofinn brúkaður töluvert en lækurinn sem er stýflaður reglulega var uppþornaður svo það bíður betri tíma.


Í dag er verið að tæma bílskúrinn í Lækjartúni og undirbúa að pakka búslóðinni niður. Það styttist óðfluga í að við flytjum á Vitabrautina. Erum búin að kaupa eldhúsinnréttingu og erum að leggja á ráðin með fyrstu aðgerðir þegar við fáum afhent. Það fá að fjúka veggir og það verða söguðu göt á gólfið... ætlum að passa okkur að fara samt ekki of geist af stað.

Það eru nýjar myndir í Albúminu...

Skrifað 22.7.2009 kl. 18:45 af Sverrir

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.7.2009

Fjölskyldan á ferð

Við áttum erindi í borg óttans í dag. Benni var að fá góminn loksins og nú er hann frekar smámæltur og munnvatnsframleiðslan er í fullum gangi.
Við erum öll 7 á ferð. Þá er ekki hlaupið að því að byðja fólk um gistingu, en við fengum íbúð leigða undir herlegheitin. Það er ágætt að geta hent af sér fötunum og látið eins og heima hjá sér og hafa svo áhyggjur að þrifum síðar. Þetta er þessi fína íbúð með aðstöðu fyrir 7.

Við erum líka hér til að leita að tilboðum í eldhúsinnréttingu. Það er púl og vesen. Sverrir var búin að teikna upp rosa flottar teikningar af rafmagni vatslögnum og mæla allt út eins og á að gera. Við erum meira að segja búin að fá hrós frá fagmönnum fyrir hvað við erum vel undirbúin með alla pappíra. En svona verður þetta að vera þegar maður býr úti á landi og skreppur ekkert heim ef þarf að mæla eitthvað.
Við tókum ákvörðun um að rífa niður vegg inn í stofuna og stækka þannig eldhúsið. Við ætlum að fá okkur eyju og barborð. Þetta verður voða flott en líka voða dýrt. Edilega bendið okkur á góða staði til að skoða. Við erum búin að fara í Björninn, HTH, Fríform og Ikea.

Brynhildur á afmæli í dag. Hún er 4 ára og er voðalega stolt. Við verðum að setja inn myndaseríu af henni þegar við komum heim.

Skrifað 13.7.2009 kl. 18:33 af Igga

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.7.2009

Hamingjudagar liðnir

Núna eru hamingjudagar á Hólmavík liðnir og hlutirnir að komast í sína vanalegu stöðu. Það eru búnir að vera gestir hjá okkur um helgina. Mamma og pabbi komu á föstudaginn eftir að hafa verið í gönguferðalagi í viku. Harpa, frænka Iggu, kom líka á föstudaginn og gisti hjá okkur um helgina. Það var nóg pláss í húsinu þar sem Ásbjörn og Benni eru enn í sumarfríi fyrir sunnan.

Krakkarnir eru búnir að taka þátt í þessum hamingjudögum. Þeir eru búnir að hjálpa til við að skreyta garðinn hjá okkur í rauða hverfinu. Það er búið að bera rauða steina og stilla þeim upp við garðinn út við götu, hengja rauðar jólakúlur í grenitré o.fl.og fl. Það er helst sú yngsta sem hefur misst af þessu öllu. Enda er hún svo ung ennþá, 3 mánaða afmæli á föstudaginn var. Það mátti ekki syngja afmælissönginn þar sem Marteini og Brynhildi fannst það einum of, þau eiga afmæli bara einu sinni á ári (og Brynhildur er næst...)



Mamma og pabbi fóru til Húsavíkur í morgun. Marteinn og Brynhildur vöknuðu snemma til þess að vekja þau. Rifu þau upp á fætur til þess að leyfa þeim að gefa sér morgunmat. Marteinn er reyndar búinn að gera það síðan á fyrsta morgni, hann er ekkert fyrir það að skríða upp í og kúra, vill bara fá fólk á fætur þegar það er orðið bjart.



Brynhildur og Guðný í kjólum sem Guðný frænka þeirra prjónaði á þær. Brynhildur er sérstaklega hrifinn af prjónuðum kjólum.

Marteinn hefur verið mjög duglegur að hjálpa til, Hann hjálpar pabba sínum alltaf að slá garðinn. Maður sér þegar hann er tilbúinn að slá því þá byrjar hann að keyra dúkkuvagninn hennar Brynhildar um garðinn með hljóðum (brummmm, bruuuummmm).
Marteinn var að hjálpa pabba sínum að rífa upp arfa af stiklingunum sem við settum niður í bakka um daginn en hann átti erfitt með að sjá hvað var arfi og hvað var stiklingur með laufblöðum þannig að við þurftum að hætta þessu. Það kæmi ekki á óvart að allar stjúpurnar væru komnar upp úr moldinni á morgun ef hann fer að vinna í garðinum þegar hann vaknar.


Það er búið að vera frábært veður hérna á Hólmavík undanfarna daga. Það er búið að vera 16°-20°upp á hvern dag og þegar það er ekki mikill vindur þá er alveg steik á pallinum. Krakkarnir eru frekar ánægðir með þetta, það er gaman að vera berfættur á trampólíninu og ekki verra ef hægt er að vera á stuttbuxum og ermalausum bol...

Skrifað 7.7.2009 kl. 21:07 af Sverrir

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 86
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 81
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 224696
Samtals gestir: 61726
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 12:24:35

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

13 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

14 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

24 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

26 daga

Guðný 1 árs

eftir

14 daga