Blogg
29.10.2009
Svína hvað?
Nú liggur hluti af fjölskyldunni í svínaflensu. Þetta er argasti viðbjóður að fá þetta, svona smá sletta af hinu og þessu sem manni finnst viðbjóðslegast af hinum flensunum. Það eru semsagt mamman, elsti strákur og elsta stelpa sem liggja núna. Við Benni erum búin að liggja síðan á þriðjudag en Brynhildur byrjaði í gærkvöldi. Sverrir fékk náttúrulega sprautu og þarf því að þjóna okkur veika fólkinu J
Marteinn og Ásbjörn eru hressir og þeir eru mikið hjá ömmu Signý á meðan þetta ástand líður hjá. En hún hefur verið einstaklega dugleg að aðstoða hérna heima.
Planið var að byrja glerjast til að ná á jólamarkaðinn en ég veit ekki hvernig það fer ef við grípum allar flensur sem koma. Mér þótti alveg nóg í síðustu viku þegar ælupestin herjaði á alla.
En það er líka gott að vera þá bara búin að fá þetta. Það er svo mikil dagskrá framundan hjá okkur. Skírn hjá Hafþóri og Olgu og tannlækna og eyrnalæknaferðir. Svo eigum við líka von á fyrstu næturgestum okkar í nýja húsið eftir viku.
Svo er spurning hvort við förum ekki að skíra Guðnýju litlu líka.
18.10.2009
Stiginn
Þegar svona op eru sett á heimil þar sem ungabörn fara um á farartækjum eins og göngugrind þá er nauðsynlegt að hafa hlið fyrir stiganum. Ég smellti einu upp sem er með krækju.
Það á eftir að ganga frá köntunum þar sem sagað var úr.
Þarna virðist hann brattari en hann er í raun.
Stiginn er alveg lokaður á milli þrepa eins og sést.
17.10.2009
Ný frænka komin í heiminn
Já, Hafþór og Olga eru búin að eignast sitt fyrsta barn!
14 merkur og 52 sm stúlka (minnir mig).
Fæddist í nótt þannig að það er afmæli 16/10 ár hvert í Baugakór.
Til lukku með það!
Af þessu tilefni fóru allir, nema ég (Sverrir) og Gordon, suður til Reykjavíkur. Ég á von á Iggu og yngstu börnunum heim aftur í kvöld en Signý og Bjössi verða lengur. Benni og Ásbjörn koma svo heim á sunnudag eftir helgarleyfi í Borgarfirðinum.
Í dag er logn, lágskýjað og rigningarúði á Hólmavík. Fyrir neðan Vitabrautina heyrir maður í fuglunum sem eru í fjörunni og á sjónum gagga og busla og fyrir ofan okkur í Borgunum sér maður og heyrir í rjúpunni sem flögrar á milli staða og ropar. Gordon er friðlaus hérna inni þrátt fyrir að hafa farið í 2 tíma hlaup í Borgunum áðan!
6.10.2009
Fjör á fróni
Benni svaf fyrstu nóttina í herberginu og svaf vel.
Loksins allir komnir á sinn stað. Nú er búið að klára þetta helsta sem varð að drífa í svo hægt væri að búa þarna. En það er ýmislegt eftir og stefnan er tekin á að klára það í vetur. Gólfefni á neðri hæðina eru í þeim pakka.
Guðný er enþá voða róleg og glöð, en það blunda í henni smá Brynhildar taktar sem eru að vakna til lífsins. Hún er t.d. farin að taka upp á því að væla í hvert skiptið sem einhver gengur í burtu frá henni og svo er smá frekja líka komin í ljós.
Marteinn er búin að vera andsetinn síðan við fluttum inn. Hann fær martraðir og við vöknum upp við öskrin í honum og stundum æðir hann um húsið og það má ekki koma við hann. Hann er líka afsakplega óþekkur við Guðnýju og það má aldrei líta af honum ef hann er nálægt henni. Hann var áðan að klappa saman höndunum hjá henni og svo smellti hann einu klappi á hausin á henni og hún grét. Þegar hann var komin í skammakrókinn þá laumaði hann sér út og lamdi Gordon. En Gordon hefur líka þurft að lúffa fyrir Marteini. Það kemur að því að Guðný og Gordon taka sig saman í lið á móti Marteini ef hann fer ekki að hætta þessu. En sem betur fer þá gerir hundurinn ekkert þótt hann sé lamin og slegin utanundir. En svo um leið og G/G eru ekki nálægt Marteini þá er hann eins og engill. En svo á hann líka það til að vera afsakplega góður við þau.
Ég fór með Brynhildi og Martein í sund áðan. Ásbjörn var á sundæfingu og hann sýndi okkur hvað hann er orðin duglegur að synda.
Núna bíðum við spennt eftir litlu frænkunni hjá Olgu og Hafþóri sem von er á núna í október. Ég held að við þurfum ekki að bíða lengi.
Já og svo má ég til með að segja ykkur frá því að búið er að opna Arnkötludalinn og þá er ekkert mál að skjótast í kaffi norður á Strandir :)
2.10.2009
Benedikt 11 ára í dag
Stiginn er væntanlegur eftir helgi. Maður er eitthvað svo óþolinmóður að bíða en það er líka þroskandi (er að reyna vera jákvæð).
Guðný er að hressast. Líklega var þetta einhver vírus því að þegar hitinn fór að minnka þá steiptist hún út í útbrotum sem bendir til vírus. Hún er búin að vera hitalaus í tvo daga og svaf úti í vagni í dag, og tók það með trompi og svaf í 3 tíma.
Brynja frænka mín ætlar að vera svo elskuleg að passa fyrir mig í kvöld á meðan við mamma förum á pub quiz. Sverrir er að vinna þessa helgina og kemst því ekki. Pabbi verður í liði með vinnufélaga sínum.
Afmælisbarnið á sjóstöng

