Blogg

12.12.2009

Desember á fullu

Það er alveg komin tími á blogg. Við erum eitthvað svo löt að pikka inn nokkrar línur, maður er eiginlega farin að nota feisbúkkið meira.

Við erum búin að hafa í nógu að snúast eins og vanalega. Sérstaklega eftir að Guðný fór að skríða.


Já sú litla er farin að rúlla sér út um allt og reynir að standa upp við hvert tækifæri og er marin og blá eftir þær tilraunir. Við erum að reyna fá hana til að hætta að vakna seint á kvöldin í svaka stuði en núna þá standur hún upp í rúminu og kallar bara á okkur "MAMMA" "DADDA". Án gríns þá segir hún þessi orð en veit örugglega ekki hvað þau þíða.


Við fengum góða gesti um síðustu helgi. Þá komu Guðrún og Sibbi sem strákana sína sem eru á sama aldri og okkar elstu. Benni var kátur að fá Stefán loksins í heimsókn en þeir eru fæddir með 10 tíma mun og hafa alla tíð verið voða góðir vinir.

Sverrir, pabbi og Sibbi fóru á rjúpu og það gekk vel, enda ekki við öðru að búast með svona svakalegan hund (Gordon) með í för (sem kemur sárfættur heim).

Jólatónleikar tónskólans voru í vikunni og okkar menn spiluðu og stóðu sig mjög vel. Ég set inn myndbönd við tækifæri. Ásbjörn spilaði, göngum við í kringum á trommur og Benni spilaði, við óskum þér góðra jóla.


Við mamma afrekuðum að baka piparkökur með krökkunum og mála. En baksturinn hefur gengið vel og enþá betur að borða allt saman og núna er stefnan að baka aðeins meira til að missa örugglega ekki kíló í desember.

Marteinn er alveg hneikslaður á þessu.

Allar jólaseríur eru komnar upp, kökur í box, búið að kaupa jólagafir er þá ekki allt komið? (tekur því ekki að taka til strax)

Á morgun er svo jólabingó

Skrifað 12.12.2009 kl. 21:54 af Igga

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 171
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 224794
Samtals gestir: 61755
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 05:31:40

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

12 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

13 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

3 mánuði

23 daga

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

27 daga

Guðný 1 árs

eftir

13 daga