Blogg
24.12.2009
Aðfangadagur
Það hefur verið í nógu að snúast hjá okkur þessa síðustu daga fyrir jól.
Ákveðið var að reyna að stressa sig ekki með jólakortin og senda þá bara nýárskveðju í staðin. Við sendum semsagt ekki kort fyrir þessi jól. Sverri finnst það ekki nógu gott að sleppa kortunum en ég lét annað ganga fyrir. Planið var að klára allt fyrir jólin, fyrir 15. des, en það tókst svona um 20. enda erum við algjörlega laus við jólastressið :)
Krakkarnir hafa verið dulegir að undirbúa jólin og aðstoðað við bakstur, tiltekt og gjafakaup. En skemtilegast er að pakka inn gjöfunum. Benni fínpússaði herbergið sitt í gærkveldi og var að dunda sér með mér fram yfir miðnætti í gær. Svo átti að fara að leggja sig en þá vakanaði Guðný og var í fullu fjöri til kl 3 í nótt. Þannig að aðfangadagur byrjar með því að foreldrarnir skipta með sér vöktum. Þessa stundina er Sverrir að leggja sig en ég fékk að taka fyrri blundinn.
Guðný er farin að skríða og standa upp og er því yfirleitt með rautt eða marið trýni. Hún er rólegasta barnið hingað til (sjö, níu, þrettán). En hún á það til að vakna seint á kvöldin og byrja að spjalla og standa upp og gala yfir allt. En hún fær ekki að fara fram að leika sér eins og hún vill og þá á hún það til að öskra sig hása. En það er eini tími dagsins sem það heyrist í henni.
Marteinn er ennþá sami orkuboltinn sem hann var. Hann er farinn að leika sér meira en hann gerði og getur dottið í að horfa á mynd öðru hvoru. Annars er hann allur að koma til, farin að telja upp í tólf og kann öll leikskólalögin og jólalög eru í miklu uppáhaldi. Hann notar skóhorn sem gítar og hleypur um allt og syngur.
Þegar jólasveinarnir byrjuðu að setja í skóinn þá var hann ekkert á því að setja skóinn sinn í gluggann. Hann vildi ekkert að einhverjir karlar væru að læðast inn í hans herbergi um miðjar nætur. En svo var þetta ekkert mál eftir nokkrar nætur, en til að byrja með vildi hann ekki kíkja sjálfur í skóinn.
Marteinn er yfir sig spenntur yfir jólapökkunum og fékk að setja smá undir tréð í gær
en það endaði með því að hann opnaði aðeins og þá var allt sett aftur inn í skáp. En svo í gærkvöldi settum við allt undir og okkar maður er búinn að pakka einum pakkanum aftur og aftur inn í pappír og situr undir trénu með pakkann í fanginu.
Brynhildur er spekingurinn í fjölskyldunni. Hún er mikið að spá í hlutunum og spyr mikið, og á svör við öllu.
Um daginn var Ásbjörn að spyrja um vin hans Benna, hvort hann væri farinn heim. Þá svaraði sú stutta "...þú þarft ekkert að eyða þínum áhyggjum af honum".
Brynhildur bjó til jólakort og sendi á krakkana í leikskólanum og er voða mikil föndukona. Hún getur dundað sér í leik allan daginn ef hún fær frið.
(það er svo margt sem hún segir og gerir sem ég ætlaði að segja frá en svo man maður ekki neitt)
Ásbjörn fer í göngutúr með afa sínum og Gordon á hverjum degi núna í jólafríinu. Hann var voðalega stoltur þegar hann kom heim um daginn búinn að labba tvo kílómetra. Hann var svo spenntur að fara aftur og fara enn lengra.
Það gengur mjög vel hjá honum að læra á trommurnar og hann er svo taktvís að það er frábært að fylgjast með honum þegar hann spilar.
Benni er á fyrsta stigi gelgjunnar. Fer í fýlu og er ekkert mikið fyrir fjölskyldustundir, en annað slagið dettur hann í gírinn og finnst við voða skemmtilegt.
Hann er að læra á gítar og er bara nokkkuð góður.
Þetta með hárið já, einmitt. Benedikt er með voða flotta klippingu sem þarf að hafa mikið fyrir að greiða og setja gel í ef á að vera flott. En okkar er bara með húfu.
Þessa stundina eru öll börnin að horfa saman á barnaefnið og eru mjög stillt og prúð.
Þau voru að enda við að baða Gordon og hundurinn þurfti að þola að 4 börn nudduðu sápunni í hann og hann var mjög niðurlægður á meðan. En núna er hann ilmandi fínn.
Jólakveðja frá fjölskyldunni á Vitabraut 1.
Gleðileg Jól