Blogg

6.3.2010

Góan

Nú eru þau gömlu komin heim og Gordon farin frá okkur í bili. Það er orðið alveg ágætt að passa upp á hundinn (nema þegar honum dettur í hug að stinga af). Það þarf náttúrulega að fara með hann út að hlaupa og þá fær maður smá hreyfingu sjálfur.

Við hjónin erum búin að vera taka mikið af ljósmyndum og vorum mætt út um hálf átta einn morguninn


Hér eru myndir af strákunum okkar






Svo er bara að skella sér á Góuball í kvöld

Skrifað 6.3.2010 kl. 11:05 af Igga

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.3.2010

Flensutími

Já það er sko kominn flensutími. Núna er Marteinn búinn að fá flensuna, er reyndar búinn að ná sér og farinn aftur á leikskólann. Brynhildur er þá búin að taka við og lagðist um helgina. Þá er Guðný búin að vera kvefuð og með hita líka, svona til að toppa þetta. Ásbjörn og Benni hafa sloppið ennþá en það er að hellast smá kvef á okkur hin og spurning hversu vel menn liggja?

Reyndar höfum við ekki tíma í svona veikindi. Það er búið að vera geggjað veður undanfarna daga, snjór yfir öllu og logn og glaða sólskin. Það er búið að troða skíðagöngubraut í Brandskjólunum (sem eru rétt ofan við húsið okkar) og við erum búin að nýta okkur það og förum á skíði á hverjum degi. Svo eru náttúrulega skíðaæfingar hjá Skíðafélaginu sem Benni og Ásbjörn fara á með Iggu.

Gordon er búinn að vera hjá okkur í næstum tvær vikur. Hann er ánægður þegar hann fær að fara með á skíðaæfingarnar(bara hægt á morgunæfingunum því þá er ekkert annað fólk í brautinni) brautin er nefnilega á aðal rjúpusvæðinu sem Gordon þekkir. Það kemur fyrir að maður skíðar fram á rjúpur á æfingum en þær eru nú ekki margar.

Signý og Bjössi eru væntanleg til landsins á miðvikudag/fimmtudag. Gordon er búinn að sitja í garðinum hjá okkur og mæna yfir á átt að Austurtúni, spuring hvort hann hafi vitað að þau yrðu bara í tvær vikur?


Skrifað 2.3.2010 kl. 15:26 af Sverrir

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.2.2010

Marteinn Aldar er 3 ára í dag


Núna eru 3 ár síðan ég fæddist og þá var ég voðalega lítill, alla vega miðað við hvað ég er stór núna!



Ég er alltaf að æfa mig í að skrifa og vonandi fer það að skila árangri fljótlega, mér er sagt að ég sé efinilegur. Þetta er náttúrulega gömul mynd eins og þið sjáið, ég er nefnilega löngu hættur að nota snuð!



Þarna voru mamma og pabbi bara ekki nógu fljót að hjálpa mér úr fötunum, ég var búin að segja þeim að ég ætlaði í bað. Brynhildur gat ekki hjálpað mér þar sem hún var komin ofaní.



Ég bý núna á Vitabrautinni á Hólmavík og þar er gott að vera.



Núna er ég að passa Gordon fyrir afa Bjössa og ömmu Signýju því þau eru í sólinni á Kanarí. Svo er mér sagt að afi sé örugglega alltaf á stuttbuxum og syndi svo í sjónum. Hann verður þá að passa sig á Hákörlunum segi ég þá alltaf.

Ég er nú reyndar veikur heima á afmælisdaginn minn, fékk hita á laugardaginn og er búinn að vera slappur síðan, það er eitthvaði að ganga!

Ég hélt nú upp á afmælið í gær og það var gaman fékk nokkra pakka en  ég á eftir að prufa dótið sjálfur, geri það þegar ég er orðinn hress.


Skrifað 22.2.2010 kl. 10:11 af Marteinn Aldar

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.2.2010

Snjókoma á Ströndum

Í dag er snjókoma hér á Hólmavík og getur maður fylgst með sköflunum vaxa í garðinum. Það er búið að vera frábært veður undanfarið, logn og blíða þó svo að hitinn hafi verið svona upp og niður.



Svona logn er búið að vera meira og minna í vetur með nokkrum undantekningum.



Einn og einn dag blæs hann og þá hressilega, þarna kom SV skot sem getur verið slæmt á Hólmavík en þá var enginn snjór.

Skrifað 19.2.2010 kl. 11:27 af Sverrir

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.2.2010

Komin tími á blogg

Við erum enn að bíða eftir vetrinum hérna á Hólmavík. Það er að vísu búið að vera svolítið kalt en það er bara alltaf logn og sólskin. Þetta er ágætt líka en við vildum geta farið á skíði, en förum á skauta í staðin. Það er búið að vera svo mikið logn að það er þetta fína svell hjá Sigga Atla við galdrasafnið. Brynhildur og Ásbjörn fóru í morgun með ömmu sinni á skauta, sú gamla var á skóm.

Nú eru miðannarpróf í skólanum og Benni ætti að vera heima alla daga að læra en það gengur eitthvað illa að fá hann heim. Hann er svo upptekin af vinunum og er farin að spá í stelpurnar held ég líka.

Ásbjörn er búin að standa sig ágætlega í skólanum. Hann er bara svo mikill göslari að hann á það til að missa sig í vinalæti og einbeitir sér þá ekki að því sem er á dagskránni. En hann er samt sem áður allur að vilja gerður og er alltaf jákvæður. Nema kanski við Benna.

Brynhildur er orðin svo stór að hún vill bara vera leika við einhverjar stelpur og er ekkert á því að koma heim á daginn, nema einhver komi með henni heim. Ef engin kemur í heimsókn þá neyðist hún til að leika við Martein og það gengur bara vel þessa daganna. Þau voru svo upptekin í leik í morgun að þau máttu ekkert vera að því að horfa á barnaefnið.

Marteinn er hættur með bleiu og það gengur mjög vel hjá honum. Hann lætur alltaf vita og er mjög jákvæður, en samt þurfum við að bíða frammi á meðan hann gerir nr 2......

Guðný er farin að fara upp um allt og út um allt, opnar alla skápa og klínir á allt. Já hún er að verða eins árs. uppáhalds aldurinn segja sumir. En við erum meira fyrir 5 ára aldurinn... Erum sveitt á eftir henni eða á undan því að hún klifrar upp um lappirnar á okkur. En það samt gaman að fylgjast með henni og sjá framfarirnar á hverjum degi.

Núna erum við í Austurtúni að bíða eftir nýbökuðum kleinum.

Ps. Setti myndir inn

Skrifað 6.2.2010 kl. 15:35 af Igga

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.1.2010

Janúar

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Nafn:

Fjölskyldan á Vitabraut 1

Heimilisfang:

Vitabraut 1

Staðsetning:

510 Hólmavík

Faðir:

Sverrir

Móðir:

Ingibjörg

Um:

Börn: Guðný, Marteinn Aldar, Brynhildur, Ásbjörn Nói, Benedikt.

Uppáhalds matur:

Allt sem við fáum í Austurtúni

Eftirminnilegast:

Allt sem börnin gera

Tenglar

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 187
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 223441
Samtals gestir: 61436
Tölur uppfærðar: 12.3.2010 01:42:33

Benedikt 12 ára

eftir

6 mánuði

21 daga

Ásbjörn Nói 9 ára

eftir

7 mánuði

22 daga

Brynhildur 5 ára

eftir

4 mánuði

1 dag

Marteinn Aldar 3 ára

atburður liðinn í

18 daga

Guðný 1 árs

eftir

22 daga